Faxaflóahafnir
Bætt ljósvist skapar notalegra og öruggara umhverfi í Gömlu höfninni

Bætt ljósvist skapar notalegra og öruggara umhverfi í Gömlu höfninni

Endurbætur Faxaflóahafna á ljósvist og lýsingu við Suðurbugt og Ægisgarð í Gömlu höfninni í Reykjavík bæta birtuskilyrði á svæðinu og auka afköst lýsingar, án þess að grípa þurfi til hefðbundinnar flóðlýsingar sem lýsir yfir allt umferðarsvæði, veitinga- og athafnasvæði í einu. Með markvissari lýsingu verður birtan jafnari, notalegri og betur aðlöguð að notkun hvers svæðis.

Endurnýjun lýsingar við Ægisgarð er nú lokið eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan. Næst í röðinni eru framkvæmdir við Suðurbugt núna í vor.

Ægisgarður

Við Ægisgarð hafa verið verið settir upp stálstaurar með kösturum sem jafna lýsingu á aksturleiðinni og tryggja betra sjónöryggi. Á síðasta ári voru þar gerðar endurbætur á hafnasvæðinu við sem fólust í skiptum á möstrum og uppsetningu nýrrar lýsingar. Markmið framkvæmdanna var að auka og jafna birtu á svæðinu, bæta öryggi og skapa betra heildaryfirbragð fyrir gangandi vegfarendur, starfsfólk og umferð.

Með endurbótunum fæst orku- og rekstrarsparnaður með orkusparandi LED lömpum og ljósastýringu auk þess sem líftími búnaðar eykst margfalt sem hefur minni umhverfisáhrif. Þá er lýsingu háttað þannig að vinnu- og umferðaröryggi sé í hámarki sem og að lýsing trufli ekki sjófarendur.

Suðurbugt

Lýsing verður endurnýjuð frá grunni í og við Suðurbugtina. Þar koma timburpollar og 8 metra háir timburstaurar með kösturum sem lýsa upp bæði göngu og aksturleiðir. Sú lýsing er hugsuð til að skapa notalega stemningu á sama tíma og hún eykur öryggistilfinningu gesta á svæðinu. Á flotbryggjum verður komið fyrir 3 metra háum stálstaurum með hringlampa á toppnum sem lýsir jafnt í allar áttir og eykur bæði öryggi og aðgengi.

Nýjar áherslur ljósvistar

Markmið Faxaflóahafna með nýjum áherslum ljósvistar í Gömlu höfnini í Reykjavík eru;

  • Bæta birtu og afköst lýsingar

  • Draga úr þörf á sterkri flóðlýsingu

  • Skapa notalegra og öruggara umhverfi

  • Samræma lýsingu fyrir akstur, göngu og dvalarsvæði

Lýsing sem er endurnýjuð fylgir stefnu Faxaflóahafna um myrkurgæði, reglugerðum og stöðlum.