Fiskur
Fiskveiðar hafa um árabil verið einn af hornsteinum atvinnulífsins á höfuðborgarsvæðinu, og gegna lykilhlutverki í starfsemi Faxaflóahafna.
Fyrir sjávarútveg
Hafnarsvæðið og þjónusta
Þjónusta við sjávarútveg er ein af grunnstoðum Faxaflóahafna og er lögð áhersla á gæði í þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki. Fjölbreytt starfsemi á sér stað á hafnarsvæðum Faxaflóahafna en sjávarútvegurinn hefur fylgt starfseminni frá upphafi og mun gera það áfram af sama krafti.
Höfnin þjónar fjölda fiskiskipa og vinnslufyrirtækja sem treysta á örugga og skilvirka innviði til löndunar, geymslu og útflutnings sjávarafurða. Þessi starfsemi skapar fjölmörg störf, bæði á hafnarsvæðinu og í tengdum greinum. Sterk staða fiskveiða er mikilvægur þáttur í rekstri Faxaflóahafna og stuðlar að áframhaldandi uppbyggingu hafnarmannvirkja.
Fiskveiðar eru einnig mikilvægur þáttur í menningarlegri og samfélagslegri ímynd hafnarsvæðisins. Faxaflóahafnir tengja saman hefðir og nútíma atvinnuhætti þar sem sjávarútvegur, nýsköpun og sjálfbærni fara saman.
Hafnaraðstaða
Sjá nánarLöndun
Hafnarvogir til taks
Hafnarvogirnar í Reykjavík og á Akranesi eru opnar mánudaga til föstudags.
Opnunartímar Hafnarvoga
Sjá nánarGjaldskrá
Gjöld fyrir þjónustu
Greiða þarf gjöld, til dæmis fyrir afla, lestar- og bryggjugjöld fyrir fiskiskip sem nýta þjónustu Faxaflóahafna. Nánari upplýsingar má finna í gjaldskrá Faxaflóahafna.
Talnaefni
Mikilvægar sjávarútvegshafnir
Gamla höfnin í Reykjavík á sér yfir hundrað ára sjávarútvegs- og atvinnusögu og er samofin þeim samfélagsbreytingum sem hafa orðið í höfuðborginni og Íslandi öllu. Nýjar atvinnugreinar hafa vaxið fiskur um hrygg síðastliðna áratugi og sett myndarlegan svip sinn á hafnarlífið. Hafnirnar í Reykjavík eru mikilvægar botnfiskhafnir, og á starfssvæði Faxaflóahafna í Reykjavík er gleðilegt að sjá að sjávarútvegur er mikilvægur þáttur í starfseminni nú sem áður fyrr.
Talnaefni Faxaflóahafna
Skoða