Faxaflóahafnir

Öruggar hafnir

Hafnir eru vinnustaðir þar sem þungur búnaður, farartæki, skip og viðkvæm efni koma saman. Öruggt vinnuumhverfi minnkar líkur á slysum, meiðslum og dauðsföllum.

Öll saman

Öryggi tengt við menningu

Sterk öryggismenning hjálpar til við að koma í veg fyrir og bregðast hratt við atvikum sem geta haft umhverfisáhrif, til dæmis eldsneytisleka, rafmagnstruflanir eða eldsvoða.

Góðar viðbragðsáætlanir tryggja að tjón verði sem minnst og að hafnarsvæðið geti starfað án verulegra truflana.

Hjá Faxaflóahöfnum er lögð áhersla á skrá­ningu allra ábendinga og ­ atvika. Allar ábendingar sem flokkaðar eru sem meiriháttar fá efnislega ­ umfjöllun. Unnið er að rannsókn, greiningu á orsökum og mótun fyrirbyggjandi aðgerða í kjölfar slíkra ­ atvika.

Öryggisstarf

Samfélagsleg ábyrgð

Virkt öryggisstarf er ekki aðeins siðferðisleg skylda heldur einnig lagaleg krafa og hluti af samfélagslegri ábyrgð Faxaflóahafna. Stefna Faxaflóahafna er að enginn verði fyrir slysi í starfi hjá fyrirtækinu.

Öryggi er mikilvægt

  • Fyrir starfsfólk
  • Fyrir viðskiptavini
  • Fyrir okkur öll