Faxaflóahafnir

Farmur

Faxaflóahafnir er stærsta vöruhöfn landsins. Á ári hverju fara á milli 3 og 4 milljónir tonna af vörum um hafnirnar. Mikilvægi góðrar hafnarþjónustu er óumdeilt og er Sundahöfn stærsta innflutningshöfn landsins.

Vöruflutningar

Farmflutningar eru lífæð vöruflutninga á milli landa

Farmflutningar eru einn af lykilþáttum í starfsemi Faxaflóahafna og hafa afgerandi áhrif á efnahagslíf og viðskiptasambönd Íslands við umheiminn.

Höfnin þjónar sem miðpunktur fyrir inn- og útflutning þar sem skip flytja farm á öruggan, skilvirkan og hagkvæman hátt. Með öflugri hafnaraðstöðu, nútímalegum flutningskerfum og góðum tengingum við samgöngunet landsins tryggir Faxaflóahöfn áreiðanlega þjónustu fyrir fyrirtæki landsins sem treysta á þessa flutninga. Farmflutningar eru þannig burðarás í starfsemi hafnarinnar og skapa fjölmörg störf sem styrkja atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu.

Vöruflutningar

Góð þjónusta er lykilatriði

Faxaflóahafnir leggja áherslu á góða þjónustu við alla þá aðila sem sinna vöruflutningum hingað til lands og við útflutning. Mikilvægi góðrar hafnarþjónustu er óumdeilt enda er Sundahöfn stærsta innflutningshöfn landsins og gegnir lykilhlutverki í vöruflutningum hingað til lands. Tvö stærstu skipafélög landsins, Eimskip og Samskip, reka þar stór farmsvæði, vöruhús auk annarra innviða til að mæta þörfum íslensks atvinnulífs.

Farmflutningar skipta einnig miklu máli fyrir framtíðarþróun Faxaflóahafna og alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands. Höfnin hefur lagt áherslu á sjálfbærni og tækniframfarir í meðhöndlun farms, þar sem sjálfvirkni, orkunýting og vistvænar lausnir eru í forgrunni. Með áframhaldandi uppbyggingu innviða og nýsköpun í farmflutningum getur Faxaflóahöfn haldið áfram að vera traustur og umhverfisvænn tengipunktur fyrir viðskipti milli Íslands og umheimsins.

Orkuskipti í farmflutningum

Markmið Faxa eru skýr, og rafmagnsinnviðir við bryggjur eru nú til staðar og hafa verið stigin stór skref í áttina að því að landtengja stærri skip sem dregur úr losun og mengun í höfninni.

Tölfræði

Talnaefni um farmflutninga

Farmur - Faxaflóahafnir