Orkuskipti
Landtengingar
Hreinni orka við bryggju
Landtengingar (OPS – Onshore Power Supply) gera skipum kleift að slökkva á hjálparvélum sínum og tengjast rafmagni beint frá landi á meðan þau liggja við höfn. Með þessu minnkar verulega losun mengandi efna eins og koltvísýrings (CO₂), brennisteinsdíoxíðs (SO₂), köfnunarefnisoxíða (NOₓ) og svifryks – sem hefur jákvæð áhrif á loftgæði og heilsu íbúa í nágrenni hafnar.
- Verulega minni loftmengun á hafnarsvæði
- Dregur úr hávaða frá skipum í höfn
- Stuðlar að kolefnishlutleysi í hafnarrekstri
Framtíðarsýn
Hugsað til lengri tíma
Árið 2014 tóku Faxaflóahafnir í notkun sinn fyrsta rafknúna atvinnubíl, af gerðinni Renault Kangoo FW 0Z, með 44 kW rafmótor. Þetta var jafnframt fyrsti rafknúni atvinnubíllinn sem boðinn var á íslenskum markaði og markaði tímamót í þróun vistvænna samgöngulausna hjá fyrirtækinu.
Bíllinn var staðsettur á Reykjavíkursvæðinu og nýttur af starfsmönnum sem önnuðust rafmagnstengingar um borð í skipum og útköll tengd vatnsafgreiðslu fyrir skip. Með þessari innleiðingu sýndu Faxaflóahafnir framsýni í umhverfismálum og lögðu grunn að frekari orkuskiptum í rekstri sínum á næstu árum.
Kostir Orkuskipta
- Rekstrarlegur ávinningur til lengri tíma
- Eykur samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar fyrir skipafélög
- Bætt loftgæði í hafnarsvæðum okkar allra
Orkuskipti
Orkuskipti fyrir umhverfið
Orkuskipti eru lykilþáttur í framtíðarsýn Faxaflóahafna um sjálfbæra hafnarstarfsemi. Með orkuskiptum er átt við breytingu frá jarðefnaeldsneyti yfir í hreina og endurnýjanlega orkugjafa – bæði á landi og þar sem því er viðkomið í starfsemi skipa sem nýta sér þjónustu í höfn.
Faxaflóahafnir hafa þegar tekið stór skref í átt að grænni framtíð, m.a. með því að bjóða upp á landtengingar og með því að fjárfesta í rafvæðingu eigin tækjabúnaðar. Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, bæta loftgæði og styðja við orkuskipti í allri virðiskeðju hafnarinnar.
Verkefni - orkuskipti
- Landtengingar fyrir skemmtiferðaskip og farmflutninga
- Rafvæðing vinnuvéla og hafnartækja
- Áherslur á vistvæna fararmáta í eigin starfsemi
