Orkuskipti og Landtengingar
EPI
Landtengingar fyrir hreinni hafnir
Landtengingar (OPS – Onshore Power Supply) gera skipum kleift að slökkva á hjálparvélum sínum og tengjast rafmagni beint frá landi á meðan þau liggja við höfn. Með þessu minnkar verulega losun mengandi efna eins og koltvísýrings (CO₂), brennisteinsdíoxíðs (SO₂), köfnunarefnisoxíða (NOₓ) og svifryks – sem hefur jákvæð áhrif á loftgæði og heilsu íbúa í nágrenni hafnar.
Kostir Landtenginga
- Aðgengi að hreinum orkugjöfum
- Hvatning til minni losunar frá skipum
- Bætt loftgæði í hafnarsvæðum
Landtengingar
Hreinni orka við bryggju
Faxaflóahafnir eru nú þegar með 3 sjálfsafgreiðslustöðvar við Miðbakka og Faxagarði. Stefnt er að því að byggja upp tveir sambærilegar stöðvar á aðalhafnargarðinum á Akranesi.
Á Grandagarði er einnig hafið samtal við Brim og Veitur um uppbyggingu landtenginga fyrir fiskiskip.
Í Sundahöfn er Eimskip með landtengingar fyrir Dettifoss og Brúarfoss. Fyrirséð er meiri þörf á orku með tilkomu nýrra skipa og auknu umfangi hafnarinnar.
- Verulega minni loftmengun á hafnarsvæði
- Dregur úr hávaða frá skipum í höfn
- Stuðlar að kolefnishlutleysi í hafnarrekstri

Hagkvæmni í rekstri
Tilraunaverkefni með Snerpu
Til að undirbúa rekstur á landtengingum á Skarfabakka þá er hafið tilraunaverkefni með Snerpu Power varðandi innkaup á rafmagni. Með því að sjá fram í tímann hvenær kaupa þarf rafmagn er hægt að gera það með hagkvæmari hætti. Samkvæmt samningnum mun SnerpaPower útvega Faxaflóahöfnum öflugt orkustýringarkerfi sem er sérstaklega hannað til að spá fyrir um raforkunotkun hafnarinnar og hámarka nýtingu rafinnviða á skilvirkan hátt. Tæknin mun einfalda rekstur, auka orkunýtni og styðja við metnaðarfull markmið Faxaflóahafna í sjálfbærni.
Hugbúnaðarlausn SnerpaPower gerir Faxaflóahöfnum kleift að nýta rauntímagögn og sjálfvirknivæða áætlanagerð um raforkunotkun, bæta eftirlit með raforkukostnaði og uppfylla samningsskyldur. Lausnin styður jafnframt við framtíðaráform Faxaflóahafna um ný og umfangsmeiri landtengingarverkefni á hafnarsvæðum.
Orkuskipti
Orkuskipti fyrir umhverfið
Orkuskipti eru lykilþáttur í framtíðarsýn Faxaflóahafna um sjálfbæra hafnarstarfsemi. Með orkuskiptum er átt við breytingu frá jarðefnaeldsneyti yfir í hreina og endurnýjanlega orkugjafa – bæði á landi og þar sem því er viðkomið í starfsemi skipa sem nýta sér þjónustu í höfn.
Faxaflóahafnir hafa þegar tekið stór skref í átt að grænni framtíð, m.a. með því að bjóða upp á landtengingar og með því að fjárfesta í rafvæðingu eigin tækjabúnaðar. Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, bæta loftgæði og styðja við orkuskipti í allri virðiskeðju hafnarinnar.
Verkefni - orkuskipti
- Landtengingar fyrir skemmtiferðaskip og vöruskip
- Rafvæðing vinnuvéla og hafnartækja
- Áherslur á vistvæna fararmáta í eigin starfsemi