Faxaflóahafnir

Í fararbroddi fyrir hreinni höfn

Faxaflóahafnir vilja ryðja brautina fyrir sjálfbæra framtíð íslenskra hafna meðal annars með innleiðingu EPI kerfisins.

Hvað er EPI

EPI er verkfæri sem gerir höfnum kleift að skilgreina umhverfisspor skemmtiferðaskipa á meðan viðkomu stendur. Tilgangurinn er að koma á fjárhagslegu hvatakerfi til umhverfisvænni og sjálfbærari rekstrar skemmtiferðaskipa og draga þannig úr ávinningi við að koma til hafna Faxaflóahafna með mengandi skip.

Skemmtiferðaskipum ber að skila inn gögnum til mats á umhverfisframmistöðu í höfn eigi síðar en 72 klst. eftir brottför. Á grunni þeirra gagna fær hvert skip EPI einkunn milli 0 (verst) og 100 (best). Skili skip ekki inn gögnum fær það sjálfkrafa 0 einkunn. EPI einkunn veitir að hámarki 17,5% afslátt af bryggjugjöldum og að hámarki 75% álag.

Kostir EPI

  • Hlutlægt umhverfismat
  • Stuðlar að notkun hreinni orkugjafa
  • Hvetur til minni losunar
  • Eflir gagnsæi og ábyrgð

Áhersla á umhverfisvernd

Hjá Faxaflóahöfnum er lögð rík áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í allri starfsemi. Sem liður í þessari stefnu er stuðst við EPI vísitölu, sem er kerfi hannað til að meta og draga úr umhverfisáhrifum frá skemmtiferðaskipum.

Kerfið veitir skipum með góða umhverfisframmistöðu umtalsverðan afslátt af hafnargjöldum en leggur álag á þau skip sem standa sig síður vel. Með þessu hvetjum við útgerðir markvisst til að taka upp umhverfisvænni tækni og vinnubrögð, sem stuðlar að hreinni höfnum.

EPI vísitalan er meira en bara mælikvarði; hún er hreyfiafl fyrir jákvæðum breytingum. Með því að umbuna umhverfisvænum skipum með lægri gjöldum sköpum við aðstæður þar sem sjálfbærni og arðsemi fara saman. Þetta leiðir af sér hreinna andrúmsloft, minni áhrif á lífríki sjávar og styrkir orðspor okkar sem ábyrgs áfangastaðar. Hreinni siglingar eru sigur fyrir útgerðina, umhverfið og samfélagið allt.

Nánar um EPI