Grænar hafnir
Ábyrgð gagnvart náttúru, umhverfi og samfélagi er forsenda þess að hafnir geti starfað og þróast til framtíðar. Með stöðugum umbótum og samvinnu við samfélagið eru mótaðar hafnir, þar sem náttúra og mannlíf dafna hlið við hlið.

EPI
Umhverfisvísitala fyrir vistvænni hafnarstarfsemi
EPI er verkfæri sem veitir höfnum upplýsingar um umhverfisáhrif skemmtiferðaskipa sem heimsækja þær. Höfnum er þannig gert kleift að koma á fjárhagslegu hvatakerfi til umhverfisvænni skipa þar sem skip með góða umhverfisframmistöðu fá afslátt, en mengandi skip greiða hærri gjöld. Markmiðið er að skapa fjárhagslegan hvata fyrir sjálfbærari rekstur og styðja við grænni hafnarstarfsemi.
Kostir EPI
- Hvati til að draga úr losun frá skipum í höfn
- Sýnileg og gagnadrifin umhverfisstjórnun
- Styður við græna umbreytingu
Landtengingar
Hreinni orka við bryggju
Landtengingar (OPS – Onshore Power Supply) gera skipum kleift að slökkva á hjálparvélum sínum og tengjast rafmagni beint frá landi á meðan þau liggja við höfn. Með þessu minnkar verulega losun mengandi efna eins og koltvísýrings (CO₂), brennisteinsdíoxíðs (SO₂), köfnunarefnisoxíða (NOₓ) og svifryks – sem hefur jákvæð áhrif á loftgæði og heilsu íbúa í nágrenni hafnar.
- Verulega minni loftmengun á hafnarsvæði
- Dregur úr hávaða frá skipum í höfn
- Stuðlar að kolefnishlutleysi í hafnarrekstri
Orkuskipti
Orkuskipti fyrir umhverfið
Orkuskipti eru lykilþáttur í átt að kolefnishluteysi hafnarinnar. Með orkuskiptum er átt við breytingu frá jarðefnaeldsneyti yfir í hreina og endurnýjanlega orkugjafa – bæði á landi og þar sem því er viðkomið í starfsemi skipa sem nýta sér þjónustu í höfn. Markmiðið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, bæta loftgæði og styðja við orkuskipti í allri virðiskeðju hafnarinnar.
Verkefni - orkuskipti
- Landtengingar fyrir skemmtiferðaskip og vöruskip
- Rafvæðing vinnuvéla og hafnartækja
- Áherslur á vistvæna fararmáta í eigin starfsemi

Umhverfisvöktun
Undirstaða stöðugra umbóta
Fylgst er með árangri í umhverfismálum og eru vöktun og mælingar undirstaða stöðugra umbóta í málaflokknum. Mælingar loftgæðastöðvar Faxaflóahafna eru aðgengilegar í rauntíma á vef Umhverfisstofnunar www.loftgaedi.is og mánaðarlegar gerlamælingar fara fram í höfnum.
- Grundvöllur stöðugra umbóta í umhverfismálum
- Miðlun og gagnsæi upplýsinga
Umhverfisstjórnun
Rýni fyrir framtíðina
Faxaflóahafnir leggja áherslu á ábyrga umhverfisstjórnun með grænu bókhaldi og útstreymisbókhaldi. Slíkt gerir okkur kleift að fylgjast með kolefnislosun, orkunotkun og öðrum umhverfisáhrifum til að geta tekið betri ákvarðanir og ráðist í umbætur.
Útstreymisbókhald
Skoða nánarGrænt bókhald
Skoða nánar