
Dráttarbátar í nýju ljósi
Kanadíska myndlistarkonan Christina Morrison heimsótti Faxaflóahafnir á dögunum og fékk að kynnast starfsemi dráttarbáta okkar um borð í Magna.
Christina Morrison hefur sérstakt dálæti á dráttarbátum og stendur að hinu metnaðarfulla West Coast Tug Project. Þar stefnir hún að því að mála alla starfandi dráttarbáta við strönd Bresku-Kólumbíu – yfir 575 báta – og hefur þegar lokið yfir 100 verkum. Með myndunum fangar hún bæði sérkenni bátanna og mikilvægan þátt í sögu og daglegu lífi hafnarsamfélaga.
Nafnið Magni á sér jafnframt sérstakan sess í sögu Reykjavíkurhafnar. Sú hefð hefur skapast að öflugasti dráttarbátur hafnarinnar beri nafnið, en núverandi Magni er sá sjötti í röðinni. Magni frá árinu 1955 var fyrsta stálskipið sem smíðað var á Íslandi og þjónaði Reykjavíkurhöfn allt til ársins 1987. Hann má enn sjá við Sjóminjasafnið í Reykjavík.
Við þökkum Christinu kærlega fyrir heimsóknina og fyrir að leyfa okkur að deila hér úrvali af svipmiklum og litríkum verkum hennar. Við tökum jafnframt undir þakkir Christinar sjálfrar til Tinnu Jóhannsdóttur, Karli Hjaltested og Ingimari Finnbjörnssyni hjá Faxaflóahöfnum sem og áhöfn Magna fyrir góðar móttökur
Nánar um Christina Morrison og West Coast Tug Project má finna á vefsíðu hennar hér.




