
Energy Observer 1 til sýnis í Gömlu höfninni í Reykjavík
Brautryðjendaskipið Energy Observer 1 er komið til Reykjavíkur og verður til sýnis við Miðbakka í Gömlu höfninni dagana 8.–12. júlí. Þar gefst borgarbúum og öðrum gestum tækifæri til að sjá skipið og kynnast því hvernig ný tækni og hreinir orkugjafar geta mótað framtíð siglinga.
Energy Observer 1 er brautryðjandaskip og fljótandi tilrauna- og rannsóknarvettvangur. Frá því skipið var sjósett árið 2017 hefur það ferðast um heiminn til að rannsaka og sýna lausnir sem geta dregið úr kolefnislosun í siglingum. Það var fyrsta skip heims sem sameinaði um borð vetnisorkukerfi, endurnýjanlega orkugjafa og vindknúna aðstoð við siglingar.
Heimsóknin til Íslands markar lok fyrsta kafla leiðangurs verkefnisins A Journey to Carbon Neutrality, þar sem rannsakaðar eru mismunandi leiðir að kolefnishlutleysi. Á Íslandi mun teymið meðal annars kynna sér nýjustu þróun í beinni föngun koltvísýrings úr andrúmsloftinu og varanlegri bindingu þess hjá Climeworks og Carbfix.
Frá Miðjarðarhafi til Reykjavíkur
Fyrri hluti leiðangurs Engergy Observer fór fram á Miðjarðarhafi, þar sem sjónum var meðal annars beint að náttúrulegum kolefnisgeymum, á borð við sjávargróður og vistkerfi hafsins. Síðari hlutinn hófst í London og hélt þaðan áfram til Antwerpen, Hamborgar, Óslóar og Þórshafnar í Færeyjum áður en skipið kom til Reykjavíkur.
Skipið kom til Reykjavíkur í gærkvöldi og er nú við Miðbakka í hjarta Gömlu hafnarinnar, nálægt hvalaskoðun Special Tours og sjávarmegin Rafnar-húsið (sjá kort hér fyrir neðan). Þar geta gestir skoðað skipið og fræðst um verkefnið, leiðangur Energy Observer og orkulausnir framtíðarinnar í siglingum.
Heimsóknir um borð
Boðið verður upp á takmarkaðan fjölda leiðsagna um borð í skipið. Skráning fer fram í gegnum hlekkina hér fyrir neðan. Athugið að afar takmarkaður fjöldi kemst í hvora leiðsögn og verður plássum úthlutað í þeirri röð sem skráningar berast.
Miðvikudagur 8. júlí kl. 20:00 - ekki fleiri pláss
Föstudagur 10. júlí kl. 11:00 - ekki fleiri pláss
Energy Oberver 1 við Miðbakka
⚡️ Energy Observer 1 til sýnis í Reykjavíkurhöfn
🗓️ Miðvikudagur til Sunndags, 8.-12. júlí
⏰ Opið kl 10:00-18:00
📍 Miðbakki - Gamla höfnin (sjá x á korti hér fyrir neðan)
👉 Komdu niður á höfn og kynntu þér eitt áhugaverðasta sjálfbærniverkefni heims á sviði siglinga.
Faxaflóahafnir hvetja íbúa höfuðborgarsvæðisins og gesti til að nýta tækifærið, koma niður að Gömlu höfninni, sjá þetta einstaka skip í návígi og fræðast um hvernig ný tækni getur mótað framtíð siglinga.


