
Farþegamiðstöðin Vör fær nýtt hlutverk yfir vetrarmánuðina
Vör, ný farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund, tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í maí. Yfir vetrarmánuðina fær húsið hins vegar nýtt hlutverk og hýsir fjölbreytta viðburði og veislur.
Opnun Varar markar tímamót í íslenskri ferðaþjónustu og móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi. Hún leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna, tryggir betri þjónustu og styður markmið fyrirtækisins um fjölgun skiptifarþega; farþega sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.
Hér er á ferð fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa og jafnframt fyrsta farþegamiðstöðin sem rís í Reykjavík í 60 ár eða frá opnun Bifreiðastöðvar Íslands, BSÍ, árið 1965.
Vör - Miðstöð mannamóta yfir vetrarmánuðina
Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fær Vör annað hlutverk sem vettvangur fjölbreyttra viðburða, veislna og samkoma. Faxaflóhafnir tilkynntu í fyrra um samstarf við Múlakaffi um nýtingu hússins yfir vetramánuðina og hafa bókanir gengið vonum framar.
Vör rúmar allt að 2.000 gesti, um 900 manns í sæti og munu veislugestir njóta stórbrotins útsýnis yfir sundið.
Frekari upplýsingar um bókanir, viðburðar og veislumöguleika má finna hér.
Myndir: Múlakaffi


