Faxaflóahafnir
Faxaflóahafnir ganga til liðs við Evrópsku samtökin um landtengingu raforku (EOPSA)

Faxaflóahafnir ganga til liðs við Evrópsku samtökin um landtengingu raforku (EOPSA)

Faxaflóahafnir hafa gengið til liðs við Evrópsku samtökin um landtengingu raforku – European Onshore Power Supply Association (EOPSA), evrópsk samtök sem vinna að því að efla notkun landtengingar rafmagns (onshore power supply) í höfnum álfunnar. Aðildin er mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð Faxaflóahafna við að þróa og stafrækja snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

Með aðild að EOPSA styrkja Faxaflóahafnir þátttöku sína í alþjóðlegu samstarfi um rafvæðingu hafna, miðlun þekkingar og mótun sameiginlegra staðla. Aðildin veitir aðgang að víðtæku tengslaneti hafna, sérfræðinga, nýsköpunar-  og orkufyrirtækja, stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka sem vinna að innleiðingu landtenginga um alla Evrópu.

Aðildin fellur vel að framtíðarsýn og hlutveki Faxaflóahafna um að bæta lífsgæði á Íslandi með því að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir sem tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði landsins við umheiminn og miðin.

Faxaflóahafnir ganga til liðs við Evrópsku samtökin um landtengingu raforku (EOPSA) - Faxaflóahafnir