Faxaflóahafnir
Faxaflóahafnir styðja áfram við Sjávarútvegsskóla unga fólksins

Faxaflóahafnir styðja áfram við Sjávarútvegsskóla unga fólksins

Faxaflóahafnir munu á ný styðja við starf Sjávarútvegsskóla unga fólksins í sumar. Við höfum stutt við verkefnið udanfarin tvö ár og lítum á það sem mikilvægt framlag til að kynna ungu fólki fjölbreytt tækifæri á sviði sjávarútvegs, hafsækinnar starfsemi og nýsköpunar.

Sjávarútvegsskóli unga fólksins er sumarskóli fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla og er rekinn í samstarfi við vinnuskóla Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar á Faxaflóasvæðinu. Markmið skólans er að auka þekkingu ungs fólks á sjávarútvegi, starfsemi greinarinnar og þeim fjölmörgu mennta- og atvinnumöguleikum sem henni tengjast.

Verkefnið á sér rætur allt aftur til ársins 2013 þegar Sjávarútvegsskólinn hóf starfsemi á Austurlandi, en frá árinu 2017 hefur hann einnig verið starfræktur á Norðurlandi. Umsjón með skólanum í Reykjavík er nú í höndum Fisktækniskóla Íslands, en Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri lagði grunn að verkefninu og hafði umsjón með því um árabil.

Kennsla fer fram eina viku í senn fyrir hvern hóp, frá mánudegi til fimmtudags, og fá nemendur kynnast fjölbreyttum þáttum sjávarútvegsins, allt frá veiðum og vinnslu til tækni, nýsköpunar og þeirra fjölmörgu starfa sem byggja á auðlindum hafsins.

Með stuðningi við Sjávarútvegsskóla unga fólksins vilja Faxaflóahafnir leggja sitt af mörkum til að efla áhuga næstu kynslóða á hafsæknum atvinnugreinum, styrkja tengsl ungs fólks við hafið og kynna þau tækifæri sem felast í einni af af mikilvægustu atvinnugreinum landsins.

Frekari upplýsingar um Sjávarútvegsskólann má finna vefsíðu Háskólans á Akureyri hér og á Facebook hér.

Faxaflóahafnir styðja áfram við Sjávarútvegsskóla unga fólksins - Faxaflóahafnir