
Fimm umsækjendur áfram í hönnunarútboði nýs Hafnarhúss
Niðurstöður forvals vegna hönnunar nýs Hafnarhúss Faxaflóahafna við Viðeyjarsund liggja nú fyrir. Alls bárust tólf umsóknir og hafa fimm umsækjendur öðlast þátttökurétt í lokuðu útboði á fullnaðarhönnun hússins.
Forvalið var auglýst 20. ágúst og rann umsóknarfrestur út 8. október. Við mat á umsóknum hlutu sex umsækjendur fullt hús stiga, 100 af 100 mögulegum. Í samræmi við forvalsskilmála var því dregið um fimm þátttökusæti meðal þeirra. Útdrátturinn fór fram á skrifstofu EFLU 5. nóvember að viðstöddum fulltrúum umsækjenda sem hlut áttu að máli.
Eftirfarandi umsækjendur hafa öðlast þátttökurétt í útboðinu:
Basalt Arkitektar
Hornsteinar arkitektar
Teiknistofan Tröð
Verkís
VSÓ Ráðgjöf
Útboðið nær til fullnaðarhönnunar hússins, þar á meðal arkitekta-, verkfræði- og lóðarhönnunar.
Nýtt Hafnarhús sameinar starfsstöðvar
Fyrirhugað Hafnarhús verður um 3.000 fermetrar við norðurenda Skarfabakka, í næsta nágrenni við farþegamiðstöðina Vör og fyrirhugaða aðstöðu dráttarbátaflota Faxaflóahafna. Þar er áformað að sameina starfsemina sem nú fer fram í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og Bækistöðinni við Fiskislóð.
Húsið mun hýsa skrifstofu- og þjónustustarfsemi ásamt sérhæfðri vinnu- og verkstæðisaðstöðu. Áhersla verður lögð á vandaðan arkitektúr, gott og sveigjanlegt starfsumhverfi og umhverfisvænar lausnir. Stefnt er að Svansvottun byggingarinnar.
Faxaflóahafnir þakka öllum umsækjendum fyrir áhugann og þátttökuna í forvalinu.