Faxaflóahafnir
Fjölmenni á Vorfundi í Íslenska sjávarklasanum

Fjölmenni á Vorfundi í Íslenska sjávarklasanum

Fjölmenni var á Vorfundi Faxaflóahafna í vikunni þar sem farið var yfir ýmis praktísk atriði, upplýsingar og lykiltölur fyrir komandi vertíð skemmtiferðaskipa í sumar. Fundurinn fór fram í Íslenska sjávarklasanum síðastliðinn þriðjudag, 28. apríl.

 Á fundinum voru Eldar Ástþórsson, markaðsstjóri Faxaflóhafna, Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður, og J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða, með kynningar og tóku við spurningum. Meðal annars var farið yfir fyrikomulag komu og brottfarar farþega í nýrri farþegamiðstöð Faxaflóhafna, Vör.