Faxaflóahafnir
Gorch Fock opið almenningi í Reykjavíkurhöfn

Gorch Fock opið almenningi í Reykjavíkurhöfn

Þýska seglskipið Gorch Fock kemur til Reykjavíkurhafnar 1. september og verður opið almenningi í fjóra daga meðan á heimsókn þess stendur.

Gorch Fock er skólaskip þýska sjóhersins og eitt þekktasta seglskip Þýskalands. Skipið var smíðað árið 1958 og hefur síðan þá gegnt mikilvægu hlutverki við þjálfun sjóliðsforingja. Jafnframt er það þekkt sem „hvíti sendiherrann“ vegna hlutverks síns sem tákn þýskrar sjómennsku og alþjóðlegs samstarfs.

Reykjavíkurhöfn er síðasti viðkomustaður skipsins á 189. þjálfunarferð þess erlendis áður en það heldur aftur til heimahafnar sinnar í Kiel. Gorch Fock kom síðast til Íslands í mars árið 2009. Skipið heimsótti Ísland einnig árið 1966 og hafði þá meðal annars viðkomu á Akureyri.

Opið almenningi við Ægisgarð

Gorch Fock mun liggja við Ægisgarð í Gömlu höfninni og býður áhöfnin íbúum og gestum að koma um borð og kynnast skipinu:

  • Miðvikudaginn 2. september, kl. 14:00–17:00

  • Fimmtudaginn 3. september, kl. 14:00–17:00

  • Föstudaginn 4. september, kl. 14:00–17:00

  • Laugardaginn 5. september, kl. 14:00–17:00

Öryggiseftirlit við landganginn

Gestir eru vinsamlegast beðnir um að koma ekki með töskur um borð, þar á meðal handtöskur og bakpoka. Öryggiseftirlit verður við inngang skipsins.

Heimsóknin er einstakt tækifæri til að stíga um borð í eitt kunnasta skólaskip heims og kynnast sögu þess, búnaði og starfi áhafnarinnar.

Það er þýska sendiráðið í samvinnu við áhöfn Gorch Fock og Faxaflóhafnir sem standa fyrir heimsóknum almennings um borð í skipið.