Faxaflóahafnir
Grænt bókhald 2025: Frá mælingum til umbóta

Grænt bókhald 2025: Frá mælingum til umbóta

Grænt bókhald Faxaflóahafna fyrir árið 2025 er komið út. Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi félagsins nam 1.511 tonnum CO₂-ígilda á árinu, samanborið við 1.562 tonn árið 2024.

Grænt bókhald veitir yfirsýn yfir umhverfisáhrif starfseminnar og þróun þeirra milli ára. Þar er meðal annars fylgst með eldsneytis- og orkunotkun, úrgangi, ferðum starfsfólks og öðrum þáttum sem tengjast rekstri Faxaflóahafna.

Á móti losun ársins nam kolefnisbinding vegna skógræktar og endurheimtar votlendis 1.772 tonnum CO₂-ígilda.

Markmið græna bókhaldsins er ekki síst að greina hvar umhverfisáhrif starfseminnar eru mest og skapa þannig betri forsendur til að forgangsraða aðgerðum og leita tækifæra til frekari umbóta.

Grænt bókhald Faxaflóahafna 2025 má nálgast hér.

Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.

Frekari upplýsingar um stefnu, sýn og hlutverk Faxaflóhafna má nálgast hér.