
Grunnskólabörn við Faxaflóa fræðast um lífríki hafsins
Í dag hófst skráning í Sjóferð um sundin, þar sem grunnskólabörnum sveitarfélaga við Faxaflóa er boðið upp siglingu með leiðsögn og fræðslu. Þetta samstarfsverkefni Faxaflóhafna, Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Special Tours hefur nú staðið yfir í þjár áratugi og gefið þúsundum grunnskólabarna í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins.
Sjóferð um sundin í 30 ár
Faxaflóhafnir, Fjölskyldu -og húsdagarðurinn og feraþjónustufyrirtækið Special Tours (þá Sérferðir) hafa allt frá árinu 1996 unnið saman að því að bjóða nemendum 6. bekkinga í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi upp á forsiglingu um Faxaflóann með leiðsögn og fræðslu. Sjóferð um sundin er árlegt verkefni sem notið hefur mikilla vinsælda og er oftast fullbókað í þær ferðir sem farnar eru.
Við hjá Faxaflóahöfnum erum ákaflega stolt af þessu verkefni og að gefa börnum kost á tengingu við höfnina, hafið og lífríkið sem í því býr. Ætla má að fyrir þrjátíuþúsund grunnsólabörn hafi farið í Sjóferð um sundin siglingu síðustu 30 ár þar sem um og yfir þúsund börn fara að jafnaði siglinguna ár hvert.
Fyrirkomulag og skráning
Í dag, miðvikudaginn 3. mars, var opnað fyrir bókanir fyrir vorsigingar Sjóferð um sundin í ár. Bókað er í ferðir, eftir stærð hópa til að hámarka nýtni bátsferða, þess vegna áskilur Fjölskyldu – og húsdýragarðurinn sér rétt til að gera breytingar á bókun í samstarfi við skólana.
Tímabil sjóferðana í ár er frá 7. apríl til 6. maí 2026. Bátsferðir eru háðar veðri og sjólagi og geta því fallið niður eða breyst með stuttum fyrirvara. Mikilvægt er að hægt sé að ná í tengilið hópsins skömmu fyrir bókaðan ferðatíma.
Kennurum grunnskólabarna í 6. bekk er bent á skráningarsíðuna hér
Fræðsluefni – Sjóferð um sundin má nálgast hér.
Um Faxaflóhafnir
Hlutverk Faxaflóahafna er að öruggar, grænar og skilvirkar hafnir og tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Rúmlega 80 manns starfa hjá Faxaflóahöfnum, sem leggja áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og sjálfbærra hafna framtíðarinnar.