
Hafsjór af skemmtun á Sjómannadeginum 2026
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík sunnudaginn 7. júní með glæsilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðarhöldin fara af stað með líflegri og litríkri skrúðgöngu kl. 12:30 frá Hörpu að hátíðarsvæðinu á Grandagarði og nágrenni.
Fjölbreytt skemmtun í boði fyrir alla fjölskylduna þar sem meðal annars koma fram; Sigga Ósk, Júlí og Dísa, Bjössi brunabangsi og Latibær. Hægt verður að fylgjast með björgunarsýningu úr sjó, boðið verður upp á andlitsmálun, þrautir og leiki fyrir börn á öllum aldri og ókeypis verður á sýningu Sjóminjasafnsins í og í Varðskipið Þór.
Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn 🐟⚓🌊
Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á vefsíðu Sjómannadagsins 2026.
Það eru Sjómannadagsráðn Faxaflóahafnir og Brim sem standa að hátíðinni eins og undanfarin ár.

