Faxaflóahafnir

Haustfundur Faxaflóahafna 2023 – Skilvirkar hafnir

Haustfundur Faxaflóahafna verður haldinn þriðjudaginn 31. október klukkan 15:00 til 17:00 í Björtuloft, í Hörpu.

Þema haustfundarins að þessu sinni er skilvirkar hafnir.

 

Dagskrárliðir:

  • Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, kynnir þróunarkosti Sundahafnar með áherslu á skilvirkni

  • Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótarsviðs, kynnir skilvirkni í starfsemi Norðuráls og hvernig hagsmunir fyrirtækisins og hafnarinnar fara hönd í hönd.

  • Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri og Sindri Dan Garðarsson sérfræðingur kynna bókunarhugbúnaðinn DOKK og tækifæri til aukinnar skilvirkni í skemmtiferðaskipageiranum

  • Umræður og fyrirspurnir

 

Fundarstjóri: Inga Rut Hjaltadóttir, sviðstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna