
Hefring Marine í Húsi sjávarklasans hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands
Faxaflóhafnir óska Hefring Marine kærlega til hamingju með Nýsköpunarverðlaun Íslands. Fyrirtækið er með aðsetur er með aðsetur í Húsi sjávarklasans sem Íslenski sjávarklasinn rekur í samvinnu við Faxaflóahafnir.
Hefring Marine hefur þróað snjallsiglingakerfi sem nýtir gervigreind og gögn til að bæta öryggi, eldsneytisnýtingu og rekstur báta og skipa. Upphaf starfseminnar má rekja til rannsókna á höggbylgjum og sjólagi sem hafa svo orðið grunnurinn að IMAS (Intelligent Marine Assistance System), snjallsiglingakerfi fyrirtækisins.
Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrst veitt árið 1994
Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af RANNÍS, Íslandsstofu, Hugverkastofunni og Nýsköpunarsjóðnum Kríu til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og vísindastarfi og náð hefur árangri á markaði.
Meðal handahafa verðlaunanna sem fyrst voru veitt árið 1994 eru; Keracis, Nox Medical, CCP Games, Blue Lagoon og DeCode Genetics.





