Faxaflóahafnir
Hlýjar móttökur þegar Le Bellot kom til Akraness á þjóðhátíðardaginn

Hlýjar móttökur þegar Le Bellot kom til Akraness á þjóðhátíðardaginn

Það var hátíðleg stund á þjóðhátíðardaginn þegar franska skemmtiferðaskipið Le Bellot frá PONANT útgerðinni heimsótti Akranes. Þetta er fyrsta skemmiferðaskipið sem leggst að bryggju í bænum í fimm ár.

Farþegar Le Bellot fengu hlýjar móttökur og harmonikkuleik frá þeim Gísla Gíslasyni og Gísla S. Einarssyni, sem báðir hafa gegnt embætti bæjarstjóra Akraness. Gísli Gíslason var jafnframt hafnarstjóri Faxaflóahafna á árunum 2005- 2020.

Gestirnir kunnu vel að meta þessa skemmtilegu og sanníslensku móttöku.

Le Bellot er fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins á Akranesi og það fyrsta sem leggst þar að bryggju í fimm ár eða frá komu National Geographic Explorer í ágúst 2021 . Seabourn Ovation heimsótti Arkanes í júlí 2023 en lá við akkeri fyrir utan bæinn og farþegar ferjaðir í land.

Næsta skemmtiferðaskip til að heimsækja Akranes, SH Vega, er væntanlegt 14. ágúst.

📸 Myndir: Akraneskaupstaður