Faxaflóahafnir
Húsfyllir á fundi með ferðaþjónustuaðilum

Húsfyllir á fundi með ferðaþjónustuaðilum

Það var húsfyllir var í morgun á fundi Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins sem J. Snæfríður Einarsdóttir kynnti nýja farþegamiðstöð sem opnar í vor og ræddi um komur skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur.

Fundurinn var liður í fundarröð markaðsstofunnar með aðilum ferðaþjónustunnar og fór fram í Hinu íslenza reðursafni. Þórður Ó. Þórðarson kynnti síðan safnið og tilurð þess áður en við fengum að rölta um og skoða.Góðar umræður og spurningar í lokin um verkefnin framundan, stöðu ferðaþjónustunnar og væntingum og hina nýju farþegamiðstöð sem opnar í vor á Skarfabakka við Viðeyjarsund.

Fleiri myndir frá fundinum má finna hér.

Húsfyllir á fundi með ferðaþjónustuaðilum - Faxaflóahafnir