
Húsfyllir á Haustfundi Faxaflóahafna
Við þökkum öllum þeim sem mættu til okkar á Haustfund Faxaflóhafna 2025 í Björtuloftum Hörpu.
Á fundinum kynntum við það sem er efst á baugi og framundan í starfsemi Faxaflóahafna og líflega umræður sköpuðust í kjölfar fyrirspurna fundargesta.Sérstakar þakkir fá þau Herbert Bjarnason, forstöðumaður skiparekstrar hjá Eimskip, og Helga Jónasdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, fyrir áhugverð gestaerindi um hönnun og smíði tveggja nýrra gámaskipa annarsvegar og Sundabraut og áhrif þeirra á starfsemi í Sundahöfn hins vegar.
Dagskrá
Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri – Rekstur, verkefni og framkvæmdir
J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða – Landtengingar skipa
Herbert Bjarnason, forstöðumaður skiparekstrar hjá Eimskip – Hönnun og smíði tveggja nýrra gámaskipa Eimskips
Helga Jóna Jónasdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni – Sundabraut, valkostir til skoðunar við Sæbraut og áhrif þeirra á starfsemi í Sundahöfn
Upptaka frá fundinum
Fleiri myndir á fundinum eru hér og hér má nálgast upptöku frá dagskránni í heild.










