Faxaflóahafnir
Innviðaráðherra heimsækir Hafnarhúsið - kynnir sér starfsenu Faxaflóahafna

Innviðaráðherra heimsækir Hafnarhúsið - kynnir sér starfsenu Faxaflóahafna

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, heimsótti höfuðstöðvar Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í vikunni og kynnti sér fjölbreytta starfsemi fyrirtækisins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi.

Faxaflóahafnir byggja á yfir 100 ára sögu hafnarstarfsemi. Frá því höfnin í Reykjavík varð til hefur hún verið þungamiðja atvinnulífs í höðborginni Á fundinum fór hafnarstjóri meðal annars yfir hvernig hlutverk hafnarinnar er í grunninn hið sama og á upphafsárum hennar – að vera tengipunktur Íslands við umheiminn – þó umfang og umsvif hafi margfaldast með árunum.

Í dag tengja Faxaflóahafnir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum. Fyrirækið leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

Innviðaráðherra heimsækir Hafnarhúsið - kynnir sér starfsenu Faxaflóahafna - Faxaflóahafnir