Faxaflóahafnir

Landaður afli árið 2021

Nú liggja fyrir tölur um landaðann afla hjá Faxaflóahöfnum sf. fyrir árið 2021 og var heildarafli ársins 92.139 tonn.  Ef við berum það saman við árið 2020, þá er um 36% aukningu að ræða milli ára  eða um 24.605 tonn.

Landaður afli skiptist á eftirfarandi hátt á milli Akranes og Reykjavíkur:

  • Á árinu 2021 var landaður afli á Akranesi 9.135 tonn og er aukning um 7.471 tonn milli ára, þ.e. yfir fimmföldun á löndunarmagni. Ástæðan fyrir þessari miklu aukningu á milli ára er löndun á uppsjávarfiski og öðrum fisktegundum. Lítið sem ekkert hefur veiðst af uppsjávarfiski á þessum slóðum síðustu tvö árin, þangað til nú. Löndun á botnfisk dróst hins vegar saman um 34%. Ekkert erlent skip landaði sjávarafla á Akranesi þetta árið.

  • Á árinu 2021 var landaður afli í Reykjavík 83.004 tonn og er það aukning um 17.134 tonn milli ára. Líkt og á Akranesi, þá var mest aukning á löndun uppsjávarfisk (þreföldun), aukning á löndun botnfisks var 21% og aðrar tegundir (28%). Talsvert dró úr löndun sjávarafla hjá erlendum skipum þetta árið í Reykjavík.

Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi um algengustu fisktegundir sem veiðast við Íslandsstrendur

  • Uppsjávarfiskur; Loðna, síld, makríll og kolmunni.

  • Botnfiskur; Ýsa, þorskur, ufsi, djúpkarfi, gullkarfi, grálúða, grásleppa, steinbítur, langa, hlýri, keila o.fl.

 

Á vef Fiskistofu er hægt að sjá landaðann afla eftir höfnum. Smellið hér til að sjá bráðabirgðatölur Fiskistofu. Upplýsingar sem birtast hér fyrir neðan eru birtar á vefnum þeirra 13. janúar 2022 (gætu tekið breytingum á næstu dögum). Ath. inn í þessar tölur vantar afla frá erlendum skipum.

Röðin á heildarafla á landsvísu

Röðun eftir afla í bolfiski

Röðun eftir afla í uppsjávarfiski

Landaður afli árið 2021 - Faxaflóahafnir