
Matráður - Viltu vera hluti af öflugri liðsheild?
Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns á starfsstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, á Akranesi, Grundartanga og í Borgarnesi. Við leggjum áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.
Við leitum að fólki með góða hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Ef þú ert þessi einstaklingur þá viljum við heyra frá þér.
Matráður
Við auglýsum laust starf matráðs á viðhaldsverkstæði Faxaflóahafna sem er við Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Starfshlutfall er 60% og miðað er við mætingu kl. 9.00 mánudag til fimmtudag.
Kröfur til starfsins
Snyrtimennska
Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki
Helstu verkefni
Sér um kaffi starfsfólks og framreiðslu á aðkeyptum hádegismat í mötuneyti.
Sér um frágang eftir máltíðir. Annast reglulega ræstingu á húsnæði áhaldahúss, fyrir utan verkstæðisrými.
Annast matarpantanir.
Hefur umsjón með því að tæki og búnaður tengt mötuneyti og ræstingu áhaldahúss starfi eðlilega og lætur yfirverkstjóra vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf.
Annast önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans.
Nánari upplýsingar um starfið gefur J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða; snaefridur@faxafloahafnir.is
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna, á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 24. maí n.k.
