Faxaflóahafnir

Myndband af flutningaskipinu Tukuma Arctica koma til Reykjavíkur

Flutningaskipið Tukuma Arctica er stærsta gámaskip sem hefur siglingaráætlun til Íslands. Það er 180 m. á lengd x 31 m. á breidd, 26.046 BT. Skipið hefur viðlegu í Sundahöfn, Reyjavík. Tukuma Arctica er sérstaklega hannað fyrir aðstæður í Norður Atlantshafi og uppfyllir skilyrði um siglingar á Polar code svæðum. Skipið er með vikulegar siglingar milli Grænlands, Íslands, Færeyja og Skandinavíu. Um samstarfsverkefni er að ræða milli Eimskip og Royal Artic Line.

Myndband af flutningaskipinu Tukuma Arctica koma til Reykjavíkur - Faxaflóahafnir