Níu teymi valin í hraðal Hringiðu
Þann 31. mars sl., birtist grein í Viðskiptablaðinu sem tilgreindi hvaða níu teymi taka þátt í nýsköpunarhraðlinum Hringiðju og eru þau tilgreind hér fyrir neðan. Teymunum er ætlað að efla og styðja við nýja tækni, ásamt því að finna aðferðir til að leysa aðsteðjandi úrlausnarefni í umhverfismálum.
Viðskiptahraðallinn, Hringiðja, byggir á alþjóðlegri fyrirmynd og býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar. Bakhjarlar að verkefninu eru: Reykjavíkurborg, Atvinnuvegaráðuneytið, Orkuveita Reykjavíkur, Hvalfjarðarsveit, Faxaflóahafnir, Sorpa og Terra auk Þróunarfélags Grundartanga og Breið Þróunarfélags. Umsjón með hraðlinum er í höndum Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi.
Teymin sem taka þátt árið 2021 eru:
Ánaburður
Framleiðsla á hágæða lífrænt vottuðum áburði úr lífrænum úrgangi. Fyrirtækið mun nýta svokallaða vermicompostin aðferð við framleiðsluna en hún felst í því að ánamaðkar eru fóðraðir á lífrænum úrgangi sem þeir svo skila frá sér sem áburði.Hemp Pack
Hemp Pack er ungt líftækni fyrirtæki í þróun á lífplasti úr lífmassa og kaldræktuðum örverum. Fyrirtækið nýtir afföll matvælaiðnaðar og landbúnaðarframleiðslu ásamt endurnýjanlegri orku til þess að framleiða sannarlega sjálfbæran staðgengil plasts fyrir alþjóðlegan markað.Icewind
IceWind hannar og smíðar litlar lóðréttsás vindtúrbínur ætlaðar fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum. Rekstraraðilar lítilla orkukerfa úr alfaraleið hafa oftar en ekki engan aðgang að rafmagni og þurfa því að framleiða sína eigin orku. Sólarorka er mjög takmörkuð á norðurslóðum og því þarf að notast við aðrar aðferðir við orkuöflun svo sem vindorku.Íslenska glerið
Endurvinnsla á steinull í nýtt hráefni. Íslenska glerið er samstarfsverkefni Fléttu, hönnunarstofu og Kristínar Sigurðardóttur vöruhönnuðar þar sem steinull er endurnýtt í nýtt glerjað efni fyrir bygginariðnað.M Bío Box
Þróa íslenska útfærslu af náttúrulega niðurbrjótanlegum umbúðum til að leysa af hólmi óvistvænar umbúðir nýttar fyrir fiskútflutning í dag.On to something
Vettvangur sem tengir saman ólíka aðila og mótar skapandi farvegi fyrir hreina strauma fráfallsefna með verðmætasköpun og sjálfbærni að leiðarljósi.Surova
Sjálfvirk grænmetisræktun inni í stöðluðum gámaeiningum staðsettum í nánd við verslanir. Surova vinnur að lágmörkun auðlinda við framleiðslu grænmetis með þróun sjálfvirkra lausna til að hámarka afköst og hagkvæmni hverrar uppskeru.Vestro
Vestro þróar nýjar vörur úr 100% endurunnu plasti og skapa í leiðinni hringrás. Markmiðið er að skipta út hefðbundnu plasti fyrir 100% endurunnið plast í framleiðslufyrirtækjum, öllum iðnaði, flutningafyrirtækjum, heimilum, sjávarútvegi og landbúnaði.XYZ Prent
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðsluferlum sem byggist á stórum þrívíddarprentunum með endurunnum Íslenskum plastúrgangi. Með að bjóða upp á þrívíddarprentun í stórum stærðum þá styðjum við sjálfbæra framleiðslu og þróunarvinnu í íslenskri hönnun og iðnaði, jafnframt, með notkun á plastúrgangi, sem annars yrði sendur úr landi, þá höldum við tækifærisskapandi afurðum innanlands.
