Norðurál hlýtur Fjörusteininn 2023
Fjörusteinninn, umhverfisverðlaun Faxaflóahafna hafa verið veitt frá árinu 2007 og voru veitt að þessu sinni í 16. skipti til Norðuráls. Venjan hefur verið að veita verðlaunin fyrirtækjum sem starfa á hafnarsvæðunum og sýnt hafa fram á framsækni í umhverfismálum og verið til fyrirmyndar hvað varðar frágang á lóðum og snyrtilegt umhverfi.
Eftirfarandi aðilar hafa hlotið Fjörusteininn frá upphafi:
2007 Eimskipafélag Íslands
2008 Nathan og Olsen hf
2009 Egilsson ehf
2010 Jón Ásbjörnsson og Fiskkaup ehf
2011 Lýsi hf
2012 Samskip hf
2013 Elding – hvalaskoðun ehf
2014 HB Grandi hf
2015 Íslenski Sjávarklasinn ehf
2016 Special Tours
2017 Landhelgisgæsla Íslands
2018 Hafið öndvegissetur
2019 Hafrannsóknarstofnun Íslands
2020 Harpan
2021 Krónan
2023 Norðurál
Rökstuðningur á vali:
Frágangur á lóð, aðkoma og umgengni á lóð Norðuráls á Grundartanga er til fyrirmyndar.
Norðurál er með vottað alþjóðlegt umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001 staðlinum. Norðurál hefur sýnt að það er framsækið þar sem það hefur unnið markvisst að verkefnum er draga úr umhverfisáhrifum fyrirtækisins og hefur verið virkur þátttakandi í nýsköpun og þróun tæknilegra lausna með til að mynda stuðningi við rannsóknarverkefni í áliðnaði. Kolefnisspor Norðuráls við framleiðslu áls er með því lægsta í heiminum. Hefur fyrirtækið sett sér það markmið að losun gróðurhúsalofttegunda hafi dregist saman um a.m.k. 40% árið 2030 miðað við árið 2015 fyrir stærstu losunarþætti sem falla ekki undir viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir. Þess má einnig geta að Norðurál hefur nýtt sjó til kælingar í stað ferskvatns, þar sem því er við komið.Óháðir aðilar hafa eftirlit með um 70 mæliþáttum í og við Hvalfjörð og eru niðurstöður þessarar umhverfisvöktunar fyrir árið 2022 þau að öll viðmiðunarmörk eru uppfyllt sem sett eru í starfsleyfum fyrir loftgæði, ferskvatn, gras, hey og sjó. Nánasta umhverfi fyrirtækisins í Hvalfirði hefur verið nefnt mest rannsakað svæði landsins.Umhverfisstofnun hefur eftirlit með starfsemi Norðuráls til að tryggja að mengun fari ekki yfir leyfileg mörk. Samkvæmt síðustu eftirlitsskýrslu Umhverfisstofnunar á vef stofnunarinnar var starfsemin frávika og athugasemdalaus.
Á myndinni eru:
Þorsteinn Ingi Magnússon framkvæmdastjóri öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs Norðuráls, Margrét Rós Gunnarsdóttir verkefnastjóri samskipta og samfélagsmála Norðuráls, Sigrún Helgadóttir framkvæmdastjóri Norðuráls, Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna.
