
Ný stjórn Faxaflóahafna tekur til starfa
Ný stjórn Faxaflóahafna var kjörin á framhaldsaðalfundi félagsins 26. ágúst. Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum eigenda félagsins sem Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar.
Af sjö aðalmönnum í stjórn Faxaflóahafna eru fimm nýjir fulltrúar í stjórn. Áfram í stjórn eru Ragnheiður H. Magnúsdóttir óháður stjórnarmaður fyrir hönd Reykjavíkruborgar og Páll Brynjarsson sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar.
Fráfarandi stjórn eru þökkuð góð störf í þágu félagsins. Auk Ragnheiðar og Pálls var hún skipuð eftirfarandi aðalmönnum; Líf Magneudóttir formanni stjórnar, Hildi Björnsdóttur varaformanni og Má Mássyni fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Helgu Harðardóttur fyrir hönd Hvalfarðarsveitar og Guðmundi Ingþóri Guðjónssyni fyrir hönd Akraneskaupstaðar
Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafna og þau lög, reglur og skilmálar sem hún starfar eftir má nálgast hér.
Fyrir hönd Reykjavíkurborgar:
Aðalmenn:
Brynjar Níelsson, formaður
Regína Ásvaldsdóttir
Anna Björk Bjarnadóttir, óháður stjórnarmaður
Ragnheiður H. Magnúsdóttir, óháður stjórnarmaður
Varamenn:
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Helena Westhöfer Óladóttir, óháður stjórnarmaður
Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, óháður stjórnarmaður.
Fyrir hönd Akraneskaupstaðar:
Aðalmaður: Líf Lárusdóttir
Varamaður: Guðmundur Ingþór Guðjónsson
Fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar:
Aðalmaður: Haraldur Benediktsson
Varamaður: Guðrún Sigríður Gísladóttir
Sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar:
Aðalmaður: Páll Brynjarsson
Varamaður: Hrafnhildur Tryggvadóttirfyrir
Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.
Frekari upplýsingar um stefnu, sýn og hlutverk Faxaflóhafna má nálgast hér.