Faxaflóahafnir
Nýr sjóvarnargarður risinn á Grundartanga

Nýr sjóvarnargarður risinn á Grundartanga

Framkvæmdum við nýjan sjóvarnargarð á Grundartanga er lokið. Yfir 200 þúsund rúmmetrar af kjarna og grjóti fóru í framkvæmdina. Garðurinn er hluti af nýrri flæðigryfju og styður við áframhaldandi þjónustu við iðnfyrirtækin á svæðinu.

Sjóvarnargarðurinn var byggður vestan við núverandi garð Faxaflóahafna. Verkið fólst meðal annars í vinnslu og flokkun á kjarna og grjóti sem flutt var í garðstæðið og nýtt til uppbyggingar garðsins.

Jafnframt var lagður vinnuvegur að vestari enda sjóvarnargarðsins. Lífrænn jarðvegur var fjarlægður ofan af klöpp og fluttur í mön vestan við grjótnámssvæðið.

Sterkari innviðir á Grundartanga

Nýja flæðigryfjan tryggir iðnfyrirtækjunum á Grundartanga áframhaldandi þjónustu þar til aðrir kostir verða í boði. Framkvæmdin er liður í að viðhalda og þróa innviði Grundartangahafnar og styðja við starfsemi fyrirtækjanna á svæðinu.

Öflug höfn fyrir fjölbreytt atvinnulíf

Grundartangi er eitt stærsta iðnaðar- og hafnarsvæði landsins og næststærsta höfn Faxaflóahafna. Faxaflóahafnir reka Grundartangahöfn og annast uppbyggingu hafnarinnviða og athafna- og iðnaðarlóða á svæðinu. Á Grundartanga er fjölbreytt iðnaðarstarfsemi og áhersla lögð á græna uppbyggingu, hringrásarhagkerfi og góðar tengingar við land- og sjóflutninga.

Tengja Ísland við umheiminn

Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.