
Nýtt gámasvæði og stórbætt lýsing á Grundartanga
Framkvæmdum við nýtt gámasvæði Faxaflóahafna á baksvæði Tangabakka á Grundartanga er lokið. Með framkvæmdinni hefur orðið mikil framför í aðstöðu til meðhöndlunar og geymslu gáma. Ný og markvissari lýsing eykur jafnframt öryggi og dregur úr ljósmengun til hagsbóta fyrir starfsfólk, íbúa í nágrenninu og þá sem eiga leið um Grundartanga.
Gámasvæðið hefur verið malbikað og komið hefur verið fyrir nýju fráveitukerfi með niðurföllum, regnvatnslögnum og brunnum sem tengjast núverandi lagnakerfi. Við undirbúning svæðisins var landið jafnað og lagður biksmyginn púkkmulningur undir malbikið.
Framkvæmdin styrkir innviði Grundartangahafnar og skapar betri aðstöðu fyrir gámaflutninga og þjónustu við fyrirtækin á svæðinu.




Markvissari lýsing og aukið öryggi
Lýsing á svæðinu var endurnýjuð með það að markmiði að bæta birtuskilyrði, yfirsýn og öryggi þeirra sem þar starfa og fara um svæðið. Markvissari lýsing dregur um leið úr óþarfa ljósdreifingu og ljósmengun á Grundartanga og bætir þannig nærumhverfið fyrir íbúa og vegfarendur. Starfsfólk Norðuráls, Elkem og Klafa hefur lýst yfir ánægju með breytinguna og jákvæð viðbrögð hafa einnig borist frá íbúum í nágrenni Grundartanga.
Við framkvæmdirnar voru eldri ljósamöstur og undirstöður fjarlægð og ný ljósamöstur og ljós sett upp ásamt rafbúnaði. Jafnframt voru lagðar lagnir fyrir lýsingu og eftirlitsbúnað.
Framkvæmdin fellur að áherslum Faxaflóahafna um lýsingu sem mætir þörfum hafnarstarfsemi og umferðar en tekur jafnframt mið af nærumhverfinu. Lýsing á hafnarsvæðum fylgir stefnu fyrirtækisins um myrkurgæði, auk gildandi reglugerða og staðla.
Áframhaldandi uppbygging Grundartangahafnar
Uppbygging gámasvæðisins er liður í áframhaldandi þróun Grundartangahafnar. Með bættri aðstöðu, öruggara umhverfi og sterkari innviðum er höfnin betur í stakk búin til að þjónusta fjölbreytta starfsemi á einu stærsta iðnaðar- og hafnarsvæði landsins.




Hafnir framtíðarinnar
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.