Faxaflóahafnir

Nýtt skipurit Faxaflóahafna tók gildi 1. mars

Nýtt skipurit Faxaflóahafna tók gildi frá 1. mars 2021. Tilgangur vinnu um nýtt skipulag hefur m.a. verið að kortleggja og skýra starfsemina, að skýra ábyrgð í verkferlum, að skerpa sýn á tekjustrauma og að auka viðskiptahugsun. Fyrirtækið verði þannig vel upp sett til að veita góða þjónustu með skilvirkum og ábyrgum hætti.

Nýtt skipulag er sett fram í formi ferlalíkans með kjarnaferli og stoðsvið. Kjarnaferli fyrirtækisins eru jafnframt tekjustraumar þess og hafa verið skilgreind þannig:

  • Hafnarþjónusta. Undir Hafnarþjónustu fellur hafnsaga, dráttarbátaþjónusta, hafnavernd og vigtarmál

  • Hafnarinnviðir. Fyrirtækið fjárfestir í hafnarmannvirkjum til að þjónusta vöru- og farþegaflutninga á sjó. Undir þetta ferli fellur rekstur hafnarinnviða.

  • Lóðir og mannvirki. Faxaflóahafnir skipuleggja og þróa land á sínu yfirráðasvæði og eiga jafnframt og reka húsnæði á hafnarsvæðum. Undir ferlið fellur viðhald og leiga, sala á lóðum og mannvirkjum.

Stoðsvið vinna þvert á ferli og verða þau þrjú:

  • Framkvæmdasvið. Framkvæmdasvið fer með stærri fjárfestingar fyrirtækisins, undirbýr framkvæmdir og hefur eftirlit með þeim en er jafnframt ráðgefandi um landupplýsingar inn á við sem út úr fyrirtækinu.

  • Viðskiptasvið. Á Viðskiptasviði eru sameinaðir nokkrir málaflokkar sem snúa að fjármálum, upplýsingatækni, markaðsmálum og viðskiptaþróun. Mikilvæg verkefni eru framundan í þróun fyrirtækisins m.t.t. upplýsingatækni og snjalllausna. Viðskiptaþróun snýst um að fyrirtækið þrói tækifæri og viðskiptahugmyndir til lengri tíma, m.a. á sviði landnotkunar.

  • Umhverfi og samfélag. Gæðastjórnun, öryggis-, heilsu- og umhverfismál, mannauðsmál og samfélagsmál eru á þessu sviði. Þannig eru innviðir eða innra starf fyrirtækisins undir hér, gæðakerfi, þróun mannauðs og áhersla á öryggismenningu en jafnframt samfélagsábyrgð og rík áhersla á umhverfisþáttinn í starfseminni.

Skilvirkni og ábyrgð eru leiðarljósið í breytingum á skipulagi en jafnframt áhersla á innra starf og þróun Faxaflóahafna. Snjallar og grænar hafnir kalla á þróun í upplýsingatækni og áherslu á umhverfis- og loftslagsmál, t.a.m. með þeim hætti að fyrirtækið taki þátt í þróun um orkuskipti á landi og á sjó. Nýtt svið, Umhverfi og samfélag, sem heyrir beint undir hafnarstjóra, endurspeglar jafnframt áherslu á þróun mannauðs, fjölbreytni og góða vinnustaðarmenningu, þróun öryggismenningar með þátttöku alls starfsfólks og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækisins.