
Orkuskipti og framtíðaruppbygging við Sundahöfn
Ný aðveitustöð sem nú rís í Sundahöfn verður hryggjarstykki í orkuskiptum framtíðarinnar á sjó og landi. Uppbyggingin er lykilskref í framtíðarþróun hafnarinnar á sviði skilvirkni og sjáfbærni, mun tryggja bæði skipaumferð og fyrirtækjum á hafnarsvæðinu næga raforku og dregur úr mengun við Faxaflóa.
Það eru Veitur sem annast framkvæmdina við aðveitustöðina sem krefjast bæði útsjónarsemi og nýrra lausna eins útlistað er hér og starfsfólk fyrirtækisins lýsir í myndbandinu hér að neðan.
Aflið svipað og öll rafmagsnotkun á Akureyri
Veitur og Faxaflóahafnir undirrituðu árið 2024 samning um afhendingu á gríðarlegu magni afls, 16 MW, en það er svipað og öll rafmagnsnotkun á Akureyri. Fyrirtæki við Sundahöfn hafa sömuleiðis óskað eftir miklu afli, t.a.m. fyrir hleðslugarð rafknúinna strætisvagna og vinnuvéla, og hún mun sömuleiðis nýjum hverfum fyrir rafmagni.
Með nýrri aðveitumiðstöð og áframhaldandi uppbyggingu á hafnarsvæðum okkar í Sundahöfn stefnum við að því að geta tengt öll skip sem leggjast þar að bryggju við rafmagn.

Nokkrar staðreyndir um verkefnið
Stærð A13: 1200 m2
Aflspennar: 3
Heildaraflgeta: 60 MVA
Spennustig: 132kV, 33kV og 11 kV
Magn SF6 gass 132 kV rofabúnaðar: Ekkert
Lengd 132kV strengja: 9.090 m
Lengd 33 kV strengja: 6600 m
Hönnun rörastokka: Lota Verkfræðistofa
Hönnun A13: T.ark
Hönnun og ráðgjöf rafbúnaðar: Verkís
Lagning rörastokka áfangi 1: PK Verk
A13 uppbygging: Alefli
Bakhjarl verkefnis: Ragnar Örn Davíðsson
Verkefnastóri A13 byggingar: Sigríður Sif Magnúsdóttir
Verkefnastjóri rörastokka, háspennustrengja og háspennubúnaðar: Guðmundur S Sigurgeirsson
Tenging Íslands við umheiminn
Hlutverk Faxaflóahafna er að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir. Við tengjum stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin – og erum í vegverð að þróa snjallar hafnir framtíðarinnar.
