
Reykjavíkurhöfn hlýtur World Cruise Awards - Vör valin besta farþegamiðstöð Evrópu
Vör, ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavíkurhöfn, hlaut í nótt World Cruise Awards sem besta farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa í Evrópu árið 2026 (Europe’s Best Cruise Terminal 2026). Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk höfn eða farþegamiðstöð hlýtur verðlaunin.
Reykjavíkurhöfn var með farþegamiðstöðinni Vör ein fjórtán tilnefndra hafna í Evrópu og keppti við rótgrónar skemmtiferðaskipahafnir álfunnar í Barcelona, Civitavecchia við Róm, Amsterdam, Lissabon, Limassol, Málaga, Kiel, Mónakó, Osló, Rostock-Warnemünde, Portsmouth, Valletta og Zadar í Króatíu.
Viðurkenningin kemur á fyrsta starfsári Varar, sem var formlega opnuð í lok maí. Úrslitin voru tilkynnt í nótt á verðlaunahátíð World Cruise Awards við Montego Bay á Jamaíka.
Reykjavíkurhöfn í hópi þekktra verðlaunahafna
Með verðlaununum skipar Reykjavíkurhöfn sér í hóp með þekktum skemmtiferðaskipahöfnum í Evrópu og víðar um heim. Meðal hafna og farþegamiðstöðva sem hlotið hafa World Cruise Awards frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2021 eru hafnir Miami, Vancouver, Singapúr, Hong Kong, Dúbaí, Kaupmannahöfn og Lissabon.
Vör og Reykjavíkurhöfn eru því í góðum félagsskap hafna sem gegna mikilvægu hlutverki í alþjóðlegum siglingum skemmtiferðaskipa.

Viðurkenning fyrir Reykjavík og Ísland
Faxaflóahafnir líta á verðlaunin sem mikilvæga viðurkenningu á Vör og þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Reykjavíkurhöfn. Þau endurspegla jafnframt markvisst starf undanfarinna ára og áratuga við að efla Reykjavík og Ísland sem áfangastað ferðamanna sem koma hingað til lands með skipum ða um Keflavíkurflugvöll til að hefja siglingu sína hér á landi.
Vör er fyrsta sérbyggða farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa hérlendis. Hún stórbætir aðstöðu til að taka á móti farþegum til og frá Reykjavík og eykur öryggi fyrir farþega, áhafnir og samstarfsaðila. Farþegamiðstöðin styður jafnframt við markmið Faxaflóahafna um fjölgun farþega sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja að jafnaði lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.
Vör fær nýtt hlutverk yfir vetrarmánuðina, utan annatíma skemmtiferðaskipa, þegar húsið nýtist fyrir viðburði, fundi og veislur. Þannig tengir Vör starfsemi hafnarinnar við borgarlífið og nýtist allan ársins hring.

Um World Cruise Awards
World Cruise Awards eru alþjóðleg verðlaun sem veitt eru árlega til að viðurkenna framúrskarandi árangur innan skemmtiferðaskipageirans. Þau eru systurverðlaun World Travel Awards og voru nú veitt í sjötta sinn. Bæði fagfólk innan greinarinnar og almenningur taka þátt í kosningunni, en atkvæði fagfólks vega tvöfalt á við atkvæði almennings.
Um Faxaflóahafnir
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.



