
Reykjavíkurhöfn tilnefnd til ESPO-verðlaunanna fyrir Vör
Samtök evrópskra hafna (ESPO) hafa tilnefnt Reykjavíkurhöfn til ESPO-verðlaunanna 2026 fyrir Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk höfn hlýtur tilnefningu til verðlaunanna.
Reykjavíkurhöfn er ein fjögurra hafna sem tilnefnd eru til verðlaunanna í ár. Vör þjónar hafnarstarfsemi yfir vertíð skemmtiferðaskipa á sumrin og nýtist sem samkomustaður borgarbúa á veturna.
ESPO tilkynntu tilnefningarnar í dag, 29. september. Óháð dómnefnd valdi fjögur verkefni til verðlaunanna en auk Reykjavíkurhafnar hlutu hafnirnar í Cork, Dublin og Tarragona tilnefningu.
Yfirskift verðlaunanna í ár er Dual-Use Port-City Projects eða hafnarverkefni sem nýtast bæði höfn og borg. Athygli er beint að mannvirkjum og svæðum sem þjóna meginhlutverki hafnarinnar en nýtast jafnframt borginni, annaðhvort á sama tíma eða á mismunandi tímum.
Vör var tekin í notkun vorið 2026 og er fyrsta sérbyggða farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa á Íslandi. Yfir sumarið tekur hún á móti farþegum og styður við markmið Faxaflóhafna um örugga og skilvirka hanfarstarfsemi. Utan annatíma skemmtiferðaskipa á veturna er húsið nýtt fyrir samkomur, veislur og viðburði. Þannig þjónar Vör ólíkum þörfum yfir árið og skapar ný tengsl milli hafnarinnar og borgarinnar.
ESPO-verðlaunin verða afhent við athöfn í Brussel 10. nóvember.
Samtök evrópskra hafna, ESPO
Samtök evrópskra hafna (ESPO) voru stofnuð árið 1993 og eru samstarfsvettvangur hafnaryfirvalda og hafnasamtaka víða um Evrópu. Samtökin vinna að sameiginlegum hagsmunum hafna og stuðla að miðlun þekkingar og reynslu þeirra á milli. Íslenska hafnasambandið er aðili að ESPO.
Fréttatilkynning ESPO: The ports of Cork, Dublin, Reykjavik and Tarragona are competing for the ESPO Award 2026
Faxaflóahafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.
