
Reykjavíkurhöfn valin framúrskarandi höfn Norður-Atlantshafsins
Reykjavíkurhöfn hlaut nýlega sérstök verðlaun ferðaþjónustu skemmiferðaskipa, Cruceroadicto Awards, á FITUR – International Tourism Fair ráðstefnunni í Madrid. Þetta er fjórða árið í röð sem verðlaunin eru veitt þar sem sem skip, fyrirtæki og hafnir innan skemmtiferðaskipa-geirans hljóta verðlaun og viðurkenningu.
Sérstaða Cruceroadicto verðlaunanna eru að það eru farþegarnir sjálfir sem velja verðlaunahafana – ekki dómnefnd. Yfir fimmþúsund farþegar tóku þátt í vali verðlaunanna í ár og í einkunnagjöf þeirra skaraði Reykjavíkurhöfn framúr hvað varðar aðgengi, öryggi og fegurð áfangastaðarins í flokki hafna í Norður-Atlantshafsins (Best Port – Atlantic Europe).
Cruceroadicto verðlaun voru veitt í 19 flokkum og fór verðlaunafhendingin fram á FITUR – International Tourism Fair, stærstu ferðaráðstefnu Spánar. Af höfnum Norðurlandanna hlaut Kaupmannahöfn einnig verðlaun. Aðrar borgir er hlutu Cruceroadicto bikar að þessu sinni eru Barcelona, Buenos Aires, Dubai, Miami, San Juan í Puerto Rico, Singapore, Syndey og Valletta. Hér má sjá lista yfir alla verðlaunahafa.
Kristín Arna Bragadóttir hjá Íslandsstofu veitti verðlaunum viðtöku fyrir hönd Faxaflóahafna.