
Samstarf um öruggari og snjallari hafnir
Faxaflóahafnir og Alda Öryggi hafa undirritað þjónustu- og þróunarsamning um notkun og aðlögun stafræna öryggisstjórnunarkerfisins Öldu fyrir þjónustubáta Faxaflóahafna. Samningurinn styður við áherslu Faxaflóahafna á öruggan og skilvirkan rekstur og þróun snjallra hafna framtíðarinnar.
Samningurinn var undirritaður á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni og ráðstefnunni í Kópavogi. Með honum verður Alda í fyrsta sinn tekin í notkun fyrir þjónustubáta hafnarfyrirtækis.
Kerfið heldur meðal annars utan um lögbundnar æfingar, áhættumat og aðra þætti öryggisstjórnunar um borð. Markmiðið er að færa utanumhald öryggismála á einn stað, bæta aðgengi áhafna að upplýsingum og auðvelda eftirfylgni. Þannig getur stafræn lausn stutt við markvissara öryggisstarf og aukna skilvirkni í daglegum rekstri.
„Öryggi er grundvallaratriði í allri starfsemi Faxaflóahafna. Við viljum hafa skýrt og aðgengilegt yfirlit yfir öryggismálin um borð og nota kerfi sem nýtist áhöfnunum í daglegu starfi,“ segir Jón Þórir Sveinsson, öryggisstjóri Faxaflóahafna. „Möguleikinn á að halda utan um lögbundnar æfingar, áhættumat og önnur öryggisverkefni á einum stað styrkir yfirsýn og eftirfylgni og vó þungt við val okkar á Öldu.“
Samstarf um frekari þróun
Öldukerfið er þegar notað um borð í fiskiskipum, þjónustubátum sjóeldisfyrirtækja, björgunarbátum Landsbjargar og hvalaskoðunarbátum. Þjónustusamningurinn tekur til notkunar Faxaflóahafna á kerfinu en samhliða hafa aðilar gert þróunarsamning um aðlögun Öldu að starfsemi hafna.
Þróunin mun taka mið af reynslu þeirra sem sinna öryggismálum og daglegum rekstri þjónustubáta Faxaflóahafna. Samstarfið fellur að áherslu Faxaflóahafna á að þróast í takt við þarfir samfélagsins og atvinnulífsins og nýta stafrænar lausnir til að bæta öryggi, yfirsýn og skilvirkni.
„Samstarfið við Faxaflóahafnir markar nýtt skref í þróun Öldu,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis. „Við erum þakklát fyrir traustið og hlökkum til að þróa kerfið áfram í samstarfi við Faxaflóahafnir og aðlaga það að starfsemi þjónustubáta og hafna. Sú þekking og reynsla sem verður til í samstarfinu mun jafnframt nýtast við frekari þróun lausnarinnar fyrir hafnir.“
Um Öldu Öryggi
Alda Öryggi þróar stafrænt öryggisstjórnunarkerfi fyrir starfsemi á sjó sem nútímavæðir öryggismál og tryggir að farið sé eftir alþjóðlegum kröfum. Kerfið heldur meðal annars utan um æfingar, áhættumat og aðra þætti öryggisstjórnunar um borð. Fyrirtækið tók þátt í StartUp supernova viðskipta- og nýsköpunarhraðli KLAK – Icelandic Startups árið 2025.
