
Sjóferð um sundin í 30 ár - Myndband
Rúmlega þrjátíuþúsund grunnskólabörnum í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi hafa fengið að kynnast undraheimi hafsins í gegnum verkefnið Sjóferð um sundin sem hófst árið 1996.
Sjóferð um sundin - samstarfsverkefni Faxaflóhafna, Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Special Tours - hefur nú staðið yfir í þjár áratugi og gefið þúsundum grunnskólabarna við Faxaflóa kost á að læra um staðarhætti og lífríki hafsins.
Við hjá Faxaflóahöfnum erum ákaflega stolt af þessu verkefni og að gefa börnum kost á tengingu við höfnina, hafið og lífríkið sem í því býr.

Sjóferð um sundin í 30 ár
Faxaflóhafnir, Fjölskyldu -og húsdagarðurinn og feraþjónustufyrirtækið Special Tours (þá Sérferðir) hafa allt frá árinu 1996 unnið saman að því að bjóða nemendum 6. bekkinga í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarnesi upp á forsiglingu um Faxaflóann með leiðsögn og fræðslu. Sjóferð um sundin er árlegt verkefni sem notið hefur mikilla vinsælda og er oftast fullbókað í þær ferðir sem farnar eru.
Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn og miðin
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.