
Snjallari hafnir með DOKK
Faxaflóahafnir kynna umfangsmikla uppfærslu á DOKK, hugbúnaðarlausn sem félagið hefur þróað til að einfalda skipulag skipakoma og samstarf hafna og þjónustuaðila. Nýjasta uppfærslan veitir notendum betri yfirsýn og ný verkfæri sem auka skilvirkni í daglegum störfum.
Hlutverk Faxaflóahafna er að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir og tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Þróun DOKK er ein leið til að sinna því hlutverki og mæta breyttum þörfum samfélagsins, atvinnulífsins og umhverfisins.
Opinn kynningarfundur um nýjungar í DOKK
Mánudaginn 26. október kl. 12:30–13:30 verður haldinn opinn Teams-fundur þar sem farið verður yfir helstu nýjungar í DOKK og spurningum svarað. Starfsfólk hafna, skipaumboðsmenn og aðrir áhugasamir eru velkomnir að kynna sér uppfærsluna og möguleika hennar.
Smelltu hér til að taka þátt í fundinum á Teams.
Frá dreifðum samskiptum til sameiginlegrar yfirsýnar
DOKK var þróað til að leysa áskoranir sem fylgdu dreifðum bókunum og samskiptum vegna komu skemmtiferðaskipa. Með því að sameina bókanir, samskipti og breytingasögu á einum stað fá hafnir, skipaumboðsmenn og skemmtiferðaskipafélög betri yfirsýn og geta brugðist við breytingum með samhæfðum hætti.
Nýjasta uppfærslan, sem ber útgáfunúmerið 2.0, byggir á þessum grunni. Hafnir geta nú skipulagt vaktir samhliða skipakomum og tengt verkefni við einstakar komur. Þjónustubeiðnir og skjöl fylgja hverri skipakomu og verkefnayfirlit dregur fram það sem þarfnast athygli. Endurbætt viðmót og bætt aðgengi í símum og spjaldtölvum auðvelda jafnframt daglega notkun.
Betri upplýsingar fyrir rekstur og þjónustu
Uppfærslan eykur einnig aðgengi að umhverfisupplýsingum. Hafnir sem nota Environmental Port Index (EPI) geta skráð einkunn hverrar skipakomu og séð áhrif hennar á gjöld. Umhverfisyfirsýn gerir þeim jafnframt kleift að fylgjast með þróun einkunna og notkun landtenginga.
Ávinningur DOKK nær út fyrir hafnirnar sjálfar. Aðgengilegt dagatal yfir skipakomur og áætlaðan farþegafjölda hjálpar ferðaþjónustufyrirtækjum og öðrum þjónustuaðilum að undirbúa komu gesta, skipuleggja mönnun og laga þjónustu að eftirspurn.
Með DOKK nýta Faxaflóahafnir reynslu af hafnarrekstri til að þróa lausn sem nýtist fleiri höfnum og samfélögunum í kringum þær. Þannig styður snjallvæðing hafna við öflugra atvinnulíf og sýn félagsins um að auka lífsgæði á Íslandi.



Eitt kerfi – yfir 40 hafnir
DOKK er hugbúnaðarlausn í eigu og þróun Faxaflóahafna sem heldur utan um bókanir og skipulag skemmtiferðaskipakoma. Kerfið er í notkun hjá höfnum á Íslandi og í Færeyjum og sameinar upplýsingar, samskipti og þjónustubeiðnir á einum vettvangi. Nánari upplýsingar á dokk.com.
Faxaflóahafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.