
Tæknilausnir á Grundartanga fá 199 milljón króna styrk
Nýsköpunarverkefnið Decarbonization Grundartangi hlaut 198,7 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði til að hraða þróun tæknilausna sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði. Verkefnið er unnið af Elkem Ísland í samstarfi við Carbfix og felur í sér greiningu á útblæstri og mat á mögulegri föngun og varanlegri geymslu koldíoxíðs í jörðu.
Decarbonization Grundartangi hlaut hæstu einkunn fagráðs Rannsóknarmiðstöðvar Íslands - Rannís.
Verkefnið er hluti af metnaðarfullri uppbyggingu á Grundartanga við þróun græns iðngarðs á svæðinu, bæta orkunýtingu og minnka losun. Um leið skapa nýsköpunaverkefni sem þessi ný tækifæri til verðmætasköpunar og styðja við atvinnuuppbyggingu á Faxaflóasvæðinu.
Frekari upplýsingar um styrkveitinguna má finna á vef Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins hér.
Grænn iðngarður á Grundartanga með hringrásarhugsun
Faxaflóhafnir eru stofnaðili að Þróunarfélagi Grundartanga sem vinnur að því að þróa Grundartangasvæðið sem grænan iðngarð með hringrásarhugsun að leiðarljósi. Uppbygging garðsins er í samræmi við viðmið Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna um græna iðngarða og er garðurinn sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.
Þróunarfélag Grundartanga , Elkem, Orkuveitan Orku náttúrunnar, Carbfix og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið undirrituðu í fyrra viljayfirlýsingu um að efla loftslagsvæna atvinnustarfsemi á Grundartanga.
Viljayfirlýsingin er í samræmi við grænar áherslur Faxaflóahafna sem og atvinnustrefnu stjórnvalda, þar sem sjálfbær nýting auðlinda og vöxtur útflutnings í greinum með háa framleiðni eru í forgrunni. Aðilar að yfirlýsingunni munu setja á fót samráðshóp sem kortleggur sóknarfæri, áskoranir og óvissuþætti vegna verkefna á Grundartanga.
Tenging Íslands við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.