Faxaflóahafnir
Þórður Már Sigfússon ráðinn skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna

Þórður Már Sigfússon ráðinn skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna

Þórður Már Sigfússon hefur verið ráðinn skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna og hefur þegar hafið störf.

Þórður kemur til Faxaflóahafna frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar þar sem hann starfaði sem verkefnistjóri deiliskipulagsáætlana síðastliðin fjögur ár. Þar áður starfaði hanns skipulagsfulltrúi í samlagi fimm sveitarfélaga á Vestfjörðum; Dalabyggð, Strandabyggð, Reykhólahreppi, Kaldrananeshreppi og Árneshreppi.

“Ég hef tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á mínum ferli í skipulagsmálum. Í starfi mínu hjá Reykjavíkurborg sá ég frá fyrstu hendi hversu lykilhlutverki eining á borð við Faxaflóahafnir gegnir, ekki aðeins í daglegri starfsemi borgarinnar heldur einnig með tilliti til framtíðarþróunar hennar. Hlutverk hafnanna nær langt út fyrir borgarmörkin, enda er starfsemi Faxaflóahafna á landsbyggðinni jafnframt mikilvægur þáttur í byggðaþróun, atvinnulífi og samspili skipulags, samgangna og hafnarstarfsemi.” segir Þórður Már Sigfússon.

Þórður er BS-gráðu í landfræði og meistaragráðu í skipulagsfræði.

Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfsvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi. Félagið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum. Rúmlega 80 manns starfa hjá fyrirtækinu sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

Þórður Már Sigfússon ráðinn skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna - Faxaflóahafnir