
Uppbygging á Granda
líftæknifyrirtækið Alvotech hyggst reisa byggingu við Fiskislóð á Granda undir starsfemi sína. Eins og segir í frétt Morgunblaðsins hefur skipulagsfulltrúi Reykjavíkur telkið jákvætt í þessar hugmyndir og komið með ábendingar varðandi frekari vinnu við skipulag lóðanna.
Lóðirnar Fiskislóð 33-37 standa á landfyllingu við sjóinn og ná frá bílaþvottastöðinni Löðri að húsi Brimrúnar í jaðri olíubirgðastöðvarinnar.
Ef áformin ganga munu þarna rísa pökkunarverksmiðja, vöruhús sem og skrifstofur fyrir Alvotech á Íslandi.
Mynd: Tölvumynd/Nordic Office of Architecture. Tillagan kann að taka breytingum.