
Vertíð skemmtiferðaskipa fyrir árið 2026 er hafin
Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til hafnar í Reykjavík í gærdag, fimmtudaginn 16. apríl, og var það hið glæsilega AIDA Sol sem lagði að bryggju við Skarfabakka í Reykjavíkurhöfn. Um borð eru 2.317 farþegar og héðan siglir skipið áfram til Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar áður en það yfirgefur íslenska lögsögu.
Búist er við alls 301.567 ferðamönnum til Reykjavíkur í vor, sumar og haust með skemmtiferðaskipum. Ríflega helmingur farþega, 164.785 eða 54,6% af heildarfjöldanum, eru skiptifarþegar (e. turnaround passangers) sem hefja eða ljúka för sinni með skemmtiferðaskipum á Íslandi. Faxaflóahafnir hafa unnið markvisst að því að fjölga þessum hópi farþega, sem dvelur lengur á landinu og skapar aukin verðmæti fyrir íslenskt efnhagslíf.
Bókaðar eru 221 skipakomur til Faxaflóahafna í ár, 18 færri skipakomur en árið 2025, og eru 155 af þeim í farþegaskiptum. Pacific World er skipið sem lokar vertíð skemmtiferðaskipa í Reykjavík þetta árið en það leggst að bryggju þann 11. Október.
Metfjöldi farþega, rúmlega 330.000, heimsótti hafnir Faxaflóhafna yfir vertíð skemmtiferðaskipa í fyrra þar sem hlutfall skiptifarþega jókst um 15% frá árinu á undan. Sjá hér.