
Við leitum að sérfræðing í landupplýsingum og gagnaumsjón
Faxaflóahafnir leita að framsýnum einstaklingi í söðu sérfræðings í landupplýsingum og gagnaumsjón á eigna og þróunarsvið fyrirtæksins. Viðkomandi þarf að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, vera sjálfstæður í starfi og hafa haldgóða reynslu af sambærilegum verkefnum eða störfum.
Ef þú ert þessi einstaklingur þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
Umsjón landupplýsingagrunns og vefsjár (ArcGIS),þ.m.t. innlestur gagna og uppfærslur.
Umhirða, varsla og skráning tæknigagna og stuðningur við miðlun gagna.
Teiknivinna, útfærsla og vinnsla gagna samkvæmt óskum á hverjum tíma.
Eftirlit með að skjölun, verklag og meðferð gagna sé í samræmi við innri ferla sviðsins.
Samvinna við fjármáladeild vegna breytinga á leigusamningum og skráningu gagna.
Aðkoma að undirbúningi og utanumhaldi samninga, þinglýsinga og skipulagsmála eftir því sem við á.
Kröfur til starfsins
Háskólamenntun eða viðeigandi menntun sem nýtist í starfi auk þekkingar á gagnagrunnum og skjalavörslu.
Þekking eða reynsla af landupplýsingakerfum (GIS), s.s. ArcGIS, og vinnu með gagnagrunna er kostur.
Hæfni til að vinna markvisst með gögn, viðhalda gæðum þeirra og fylgja verklagi við skráningu og vistun.
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymum sem og sjálfstætt. Góð tölvufærni og hæfni í að tileinka sér ný kerfi.
Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu í Hafnarhúsinu – skrifstofu Faxaflóhafna, Tryggvagötu 17 í Reykjavík.
Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Garðar Jörundsson sviðsstjóri eigna- og þróunarsviðs, jon@faxafloahafnir.is Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 28. júní n.k.
Faxaflóhafnir tengja Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin. Félagið rekur umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi og leggur áherslur í að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum við þróun snjallra og skilvirkra hafna framtíðarinnar.
