Farþegamiðstöð
Vorið 2026 munu Faxaflóahafnir taka í notkun nýja og glæsilega fjölnota farþegamiðstöð sem þjónusta mun þann mikla fjölda farþega skemmtiferðaskipa sem hingað koma ár hvert. Um er að ræða 5.500 fm. byggingu á tveimur hæðum, með stórbrotnu útsýni yfir sundið.
Farþegamiðstöðin leysir af hólmi tímabundna og takmarkaða aðstöðu sem fyrir er, tryggir betri þjónustu við ferðamenn og styður við það markmið Faxaflóahafna að fjölga skiptifarþegum skemmtiferðaskipa; ferðamönnum sem hefja eða ljúka ferðalagi sínu með skemmtiferðaskipum hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti í samfélaginu.

Fleiri hlutverk
Fjölnota farþegamiðstöð
Frá október og út mars ár hvert, eða utan hefðbundins annatíma í komu skemmtiferðaskipa, mun þessi fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna fá annað hlutverk sem glæsilegur vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði, samkomur og veislur í Reykjavík. Eftir formlegt útboðsferli var það niðurstaða Faxaflóahafna að ganga til samstarfs við Múlakaffi og var samstarfssamningur til fimm ára undirritaður 1. október 2025.

Skiptistöð skipafarþega í Norður-Atlantshafi
Síðastliðin tvö ár hafa um 300 þúsund ferðamenn farið um Faxaflóahafnir á ári, með 260 skipum. Faxaflóahafnir hafa lagt sérstaka áherslu á að fjölga skiptifarþegum sem ferðast um Keflavíkurflugvöll á leið sinni í ferðalög með skemmtiferðaskipum, en þeir dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir samfélagið. Hlutfall skiptifarþega af heildarfjölda gesta í ár er áætlað 52,4% og hefur aldrei verið hærra.