Faxaflóahafnir

Forvarnir

Öruggt vinnuumhverfi

Forvarnir eru grunnstoð í okkar starfsemi

Forvarnir skipta lykilmáli í öryggisstarfi hafna þar sem þær hjálpa til við að koma í veg fyrir slys, tjón og óhöpp áður en þau eiga sér stað. Með skipulögðum forvörnum er hægt að greina áhættu, meta hættur og grípa til aðgerða sem tryggja öruggt vinnuumhverfi fyrir alla sem starfa á eða sækja höfnina. Þetta á bæði við um starfsmenn, áhafnir skipa og gesti hafnarinnar.

Góðar forvarnir stuðla einnig að verndun umhverfisins með því að draga úr líkum á olíuleka, mengun og öðrum atvikum sem geta haft alvarleg áhrif á lífrík sjávar og samfélagið í kring. Þær tryggja að rekstur hafnarinnar gangi hnökralaust fyrir sig og á ábyrgan hátt. Með því að leggja áherslu á fræðslu, reglulegt eftirlit og viðbragðsáætlanir má byggja upp öfluga öryggismenningu sem ver bæði fólk, eignir og náttúru.

Forvarnarverðlaun á grunni menningar

Faxaflóahafnir hlutu árið 2024 Forvarnarverðlaun VÍS í flokki minni fyrirtækja, fyrir öfluga öryggismenningu og setja öryggi í fyrsta sæti í allri sinni starfsemi. Forvarnarverðlaun VÍS eru veitt þeim fyrirtækjum sem skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum fyrirmynd í þeim efnum. Hjá Faxaflóahöfnum er meðal annars virkt ábendingarkerfi um atvik sem geta skapað hættur í umhverfinu. Ábendingarkerfið, öflug fræðsla, þjálfun starfsmanna og upplýsingamiðlun til notenda hafnanna, eru allt liðir í að skapa öryggismenningu sem endurspeglast í því að slysatíðni er mjög lág hjá Faxaflóahöfnum.

„Í hlutarins eðli þá fer mikið af starfsemi í kringum Faxaflóahafnir fram í og við sjó, því er mikilvægt að byggja upp öfluga öryggismenningu meðal mannauðsins með bæði fræðslu og þjálfun“, segir Jón Þórir Sveinsson öryggisstjóri Faxaflóahafna.

Inga Rut Hjaltadóttir sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna, Jón Þórir Sveinsson öryggisstjóri Faxaflóahafna og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna tóku á móti Forvarnarverðlaun VÍS.