Faxaflóahafnir

Mannlífið á höfninni

Hátíð hafsins

Sjómannadagurinn ár hvert

Sjómannadagurinn er orðin einn af hornsteinum í jákvæðum viðburðum borgarlífsins og það vekur jákvæða athygli á hafnarstarfseminni.

Í undirbúningi hátíðahaldanna leggja margir á sig töluverða vinnu og hefur Sjómannadagurinn verið haldinn í samstarfi við Sjómannadagsráð og Brim. Sjómannadagurinn er einn af stærri hátíðisdögunum í Reykjavík á ári hverju, enda leggja að jafnaði tugir þúsunda gesta leið sína á hafnarsvæðið við Gömlu höfnina og Grandagarð ár hvert.

Líf í gömlu verbúðunum

Faxaflóahafnir hafa um árabil leigt út verbúðirnar við Grandagarð og Geirsgötu. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir þessum plássum enda staðsetning þeirra góð í borginni.

Í skipulagi er gert ráð fyrir verslun og þjónustu á lóðum verbúðanna og var frá upphafi stefnan sett á að þar sé starfsemi sem dragi að fólk og stuðli að fjölbreyttu mannlífi við höfnina.

Hamborgartréð við höfnina

Löng hefð er fyrir því tendra ljós á Hamborgartrénu við hátíðlega athöfn á Miðbakkanum. Jafnan er boðið upp á fiskisúpu ásamt því að jólasveinar og tónlistarfólk skemmta gestum og leika jólalög.

Saga Hamborgartrésins

Íslenskir sjómenn sem lögðu að í Hamborg eftir seinna stríð elduðu fiskisúpu handa svöngu fólki meðan verið var að landa úr togurunum þeirra. Sem þakklætisvott hófu hafnaryfirvöld í Hamborg árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar og stendur Hamborgartréð við höfnina yfir hátíðarnar. Vegna umhverfissjónarmiða er ekki lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi og hafa Faxaflóahafnir þess vegna keypt tré frá Skógræktinni í seinni tíð.