Faxaflóahafnir

Fundargerðir

133. fundur

Ár 2015, föstudaginn 12. júní kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 09:00.

Mættir:

Kristín Soffía Jónsdóttir

Þórlaug Ágústsdóttir

Júlíus Vífill Ingvarsson

Ólafur Adolfsson

Björgvin Helgason

Jónína Erna Arnardóttir

Varafulltrúar:

Gunnar Alexander Ólafsson

Áheyrnarfulltrúar:

Ragnar Eggertsson

Auk þess sátu fundinn: Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi, Guðmundur Eiríksson, forstöðumaður tæknideildar  og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, sem jafnframt ritar fundargerð.

1.     Kosning varaformanns.

Gerð var tillaga um S. Björn Blöndal og var hún samþykkt.

2.    Bréf Starfsmannafélags Faxaflóahafna sf., dags. 22.5.2015, um kosningu fulltrúa starfsmanna í hafnarstjórn.

Lagt fram.

3.   Minnisblað hafnarstjóra og Bergþóru Bergsdóttur, dags. 21.5.2015, frá fundi Umhverfisstofnunar og Faxaflóahafna sf. um umhverfisvöktun á Grundartanga.

Lagt fram. 

4.   Erindi skrifstofu borgarstjóra þar sem óskað er umsagnar við áskorun Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð varðandi fyrirhugaða byggingu sólarkísil­verksmiðju Silicor Materials Inc. á Grundartanga, dags. 21.5.2015. Drög að umsögn hafnarstjóra, dags. 12.6.2015.

Hafnarstjóra falið að senda umsögnina.

5.   Erindi borgarritara, dags. 19.5.2015, varðandi tilkynningar til Fyrirtækja- og ársreikningsskrár RSK um breytingar í stjórn.

Lagt fram.

6.   <a href="https://www.faxafloahafnir.is/wp-content/uploads/Vatnsveitufélagið-40-stjórnarfundur-2015-06-03.pdf">Fundargerð 40. stjórnarfundar</a> Vatnsveitufélags Hvalfjarðarsveitar frá 3. þ.m.

Lögð fram.

7.   Erindi Hvalfjarðarsveitar, dags. 3.6.2015, um hljóðmælingar og kortlagningu hávaða á Grundartanga.

Hafnarstjórn samþykkir tillögu Hvalfjarðarsveitar um hljóðmælingar á Grundartanga og felur hafnarstjóra málið. Hafnarstjórn samþykkir að auki að fela hafnarstjóra að láta gera úttekt á lýsingu á Grundartanga, sem miði að því að uppfylla öryggisskilyrði lýsingar, en þó þannig að dregið verði úr áhrifum lýsingar út fyrir atvinnusvæðið eins og kostur er.

8.   Erindi Hvalfjarðarsveitar, dags. 3.6.2015, þar sem óskað er eftir tilnefningu frá Faxaflóahöfnum sf. vegna stefnumótunarvinnu um grænar áherslur, upp­byggingu, gatnagerð og frángang lóða á Grundartanga.

Hafnarstjórn tilnefnir hafnarstjóra í starfshópinn.

9.   Erindi Forvals heildverslunar ehf., dags. 22.5.2015, þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp göngupall við Grandagarð 8.

Skipulagsfulltrúi gerði grein fyrir málinu. Samþykkt að óska eftir umsögn eigenda hússins Grandagarður 8.

10.  Minnisblað hafnarstjóra, dags. 28.5.2015, varðandi lóðamál á Gelgjutanga.

Hafnarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

11.   Minnisblað um Fjörusteininn 2015.

Lagt fram.

12.   Forkaupsréttarmál.

a.  Erindi Fasteignakaupa ehf., dags. 3. júní 2015, varðandi beiðni um að fallið ferði frá forkaupsrétti á Hólmaslóð 2 fastanr. 223-3382. Kaupandi Skúli Rúnar Jónsson, kt. 220574-3269. Seljandi Verkgæði ehf. kt. 710511-0630.

Hafnarstjórn staðfestir að fallið sé frá forkaupsrétti með venjulegum fyrirvara um að starfsemi falli að lóðrleigusamningi og deiliskipulagi.

13.   Önnur mál.

Gerð grein fyrir atviki sem átti sér stað í Gömlu höfninni fimmtudaginn 11. júní.

Fleira ekki gert,

fundi slitið kl. 10:15

133. fundur - Faxaflóahafnir